« Frægasti Einar í heimi - annar hluti | Aðalsíða | Tölvupenni »
Google myndir
Já, ég ætla að halda áfram á hégómatrippinu mínu. Sindri bendir á hvernig eigi að fá Google til að finna réttu myndina af sér. Þannig að ég ætla að leika sama leikinn. Smellið hér: Einar
Það er náttúrulega hægt að leika sér áfram með þetta. Ég gæti til dæmis búið til þessa síðu: Hugo Chavez og látið alla halda að Hugo Chavez sé alveg ótrúlega líkur Patton, hundi eins vinar míns. Ég hef samt ekki hugmynd um hvort þetta virki.
Ég gæti líka vegna leikið mér aðeins að leit.is og búið til alls konar skemmtilegar færslur. Ég gæti til dæmis búið til færslu, sem héti: "Sætir strákar", þannig að ef stelpur væru að leita að "sætum strákum" á leit.is, þá lentu þær beint inni á minni síðu. Vúhú! Ég er svo sniðugur!
Æji, þetta er komið nóg af þessari leitarvélavitleysu í bili. Jens PR er að safna saman lista yfir Movabletype notendur á Íslandi. Spurning hvort einhver nenni að þýða MT pakkann yfir á íslensku. Ég ætlaði einu sinni að gera það, en ég nenni því varla lengur. Þetta ætti þó ekki að vera mikið mál. Sjá hér.
Ummæli (5)
Ragnar, hvernig væri bara að pósta alla is.pm skrána á einhverju vefsvæði, þínu, mínu, whatever og svo gætu menn bara kommentað á hana. Það væri hægt að biðja menn bara um að taka að sér að þýða nokkrar línur. Ég væri alveg til í að íslenska hluta af honum. Ég er viss um að Jens væri líka til í að taka að sér hluta.
Það væri rosalega skemmtilegt ef þetta væri allt á íslensku.
Right. Eg sendi ther tolvupost um leid og eg kemst i gognin min…
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
Það er búið að skrifa íslenskan pakka að hluta til fyrir MT