« Norðurlöndin geta líka verð ágæt | Aðalsíða | Útsýni frá Marriott »

Er ég kominn heim?

29. apríl, 2005

Kominn aftur í Vesturbæinn.

Ég var ólýsanlega þunnur í fluginu í dag. Langaði að æla á sænsku tuskuna við hliðiná mér. Þetta var með erfiðari flugum, sem ég hef upplifað.

Þessi þynnka á sér sínar skýringar.

Ég er búinn að vera í Stokkhólmi undanfarna 3 daga. Var þarna á söluráðstefnu hjá Van Melle (Mentos) fyrir öll Norðurlöndin. Þarna voru fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum og ræddum við takmörk og nýjungar fyrir næsta ár.

Í gær héldum við svo öll kynningar fyrir nýja markaðsherferð á Mentos og voru veitt verðlaun fyrir bestu kynninguna. Ég vann þá keppni þrátt fyrir að ég hafi gert kynninguna mína einn inná hótelherbergi í Gautaborg en hin löndin hafi haft fjölda fólks til að hjálpa sér.

Í verðlaun voru 15.000 evrur (um 1,2 milljón króna), sem á að nota í markaðssetningu hér á landi. Vonast til að þessi herferð fari af stað seinnipart sumars eða þá í byrjun næsta árs. Það var tilkynnt um úrslitin í kvöldverði á veitingastað í Djurgarden. Ég fékk því að fara á djammið og í flugið í dag með risavaxna ávísun, sem vakti gríðarlega athygli.

Allavegana, eftir kvöldverðinn fórum við svo flestöll á djammið. Kíktum á Cafe Opera og Spy Bar. Ég drakk vodka, hvítvín og bjór, sem mig grunar að sé ástæðan fyrir þessari hrikalegu þynnku. Var að til klukkan 4 í morgun en var svo mættur á fund klukkan 8. Tók síðan flugvél til Íslands um tvö leytið, sem var einsog áður sagði martröð líkust.


Ég veit að ég hef áður minnst á það en Sea Change með Beck er einfaldlega æðisleg plata. Ég er ekki alveg að fíla Guero nógu vel. Ég fíla rólega Beck og hann er aldrei betri nema á Sea Change. Elska að hlusta á þessa plötu þegar ég er þunnur. Líður einsog það sé sunnudagur. Mikið er það fínt að það sé föstudagskvöld.

Einar Örn uppfærði kl. 22:08 | 308 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (9)


Glæsilegt hjá þér! Til hamingju með verðlaunin :-)

Kristján sendi inn - 29.04.05 22:51 - (Ummæli #1)

Til hamingju með sigurinn. Ekki við öðru að búast af þér.

kv, tobs

Tobbi sendi inn - 30.04.05 03:03 - (Ummæli #2)

vá frábært! - til hamingju! :-) …þynnka þynnka þynnka… úff held ég hafi fengið króníska þynnku um daginn en maður jafnar sig fljótt :-)

Pálína sendi inn - 30.04.05 04:56 - (Ummæli #3)

Takk! :-)

Einar Örn sendi inn - 30.04.05 11:09 - (Ummæli #4)

Sea Change er eina platan hans sem ég fíla sem heild - annað eftir hann fer alveg framhjá mér.

svansson.net sendi inn - 30.04.05 11:32 - (Ummæli #5)

Og til hamingju með verðlaunin :-)

svansson.net sendi inn - 30.04.05 11:33 - (Ummæli #6)

Vá..djöfull ert þú klár drengur!

RG sendi inn - 01.05.05 15:34 - (Ummæli #7)

Takk :-)

Og Svansson, ef þú fílar Sea Change, þá ættirðu nú að gefa Mutations sjens. Hún er frábær.

Einar Örn sendi inn - 01.05.05 21:09 - (Ummæli #8)

hehe, glæsilegt!

Leifur sendi inn - 03.05.05 09:05 - (Ummæli #9)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu