« Tónar | Aðalsíða | Síðustu dagar (uppfært) »

Deuce BMG

25. ágúst, 2005

Ég á bágt með að trúa því að ég búi í landi þar sem Rob fokking Schneider - sem var að klára við að gefa út mynd, sem margir gagnrýnendur eru sammála um að sé versta mynd allra tíma, komist á baksíðu stærsta dagblaðsins, á forsíðu þriðja stærsta dagblaðsins og í einkaviðtal í vinsælasta sjónvarpsþáttinn, allt sama daginn.

Mér finnst gott mál að taka vel á móti frægu fólki, en þetta er eiginlega dálítið sorglegt.

Einar Örn uppfærði kl. 23:15 | 75 Orð | Flokkur: Kvikmyndir



Ummæli (8)


Sammála. Og ég vorkenni virkilega fólkinu sem klæddi sig upp og fór í bíó í gær til þess eins að fá mynd af sér með þessum aula. Erum við virkilega svona ógeðslega desperate þjóð?

Kristján Atli sendi inn - 25.08.05 23:39 - (Ummæli #1)

Nákvæmlega þetta sem ég sagði þegar ég sá fyrst að hann væri að koma. Þetta er svo fáránlegt að maður gæti grátið yfir vitleysu blaðanna að taka þátt í þessu. Fara svo ekki fáránlega margir á þessa vitleysu í bíó útaf þessu frábæra PRi sem er búið að ganga yfir landann, frí góð auglýsing

http://gummijoh.net/2005/08/hr_schneider.php

Gummi Jóh sendi inn - 26.08.05 00:18 - (Ummæli #2)

Sammála. Hann hafði heldur ekkert nýtt til málanna að leggja. Sagði alltaf sömu hlutina, í blöðunum og í Kastljósinu. Held að hann hafi verið á repeat.

Una sendi inn - 26.08.05 14:33 - (Ummæli #3)

“Á maður að þekkj’ann úr einhverjum myndum?” spurði ein í vinnunni í dag. Ég gat ekki varist hlátri. En hey, er fólk búið að gleyma Ron Jeremy? Hver næst? Paulie Shore?

Ágúst sendi inn - 26.08.05 20:33 - (Ummæli #4)

Já, líka kynningin í Kastljósinu: RS, sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt í Deuce Bigalow: Male Gigalo. Það er stórkostlegur afrekalisti þegar það er talið helsta hlutverk leikferilsins.

Og já, Paulie Shore hlýtur að vera næstur. :-)

Einar Örn sendi inn - 26.08.05 20:43 - (Ummæli #5)

Pfff, mér finnst þetta bara fínt. Sé ekkert hvað er verra við að fá Rob Schneider til landsins en að hafa alla hina lúðana hér hvort sem er, allt árið í kring.

A.m.k. finnst einhverjum gaman að fá hann. Ég er feginn að U2 komi aldrei…þá fyrst verður leiðinlegt.

Halli sendi inn - 27.08.05 16:55 - (Ummæli #6)

Myndi nú segja að það sé ágætis frétt að einn af aðalleikurum til fjölda ára og höfundum Saturday night live sé hér á landi. Kannski engin stórfrétt en engu að síður hefur þessi þjóð alveg gott af því að hlæja smá og getur enginn neitað að þessi maður sé ekki fyndinn.

Rúnar sendi inn - 28.08.05 18:56 - (Ummæli #7)

Jú, ég get neitað því að hann sé fyndinn. Kannski finnst öðru fólki Deuce Bigalow og The Animal vera fyndinn, en ég sker mig þá bara útúr fjöldanum.

Einar Örn sendi inn - 28.08.05 21:23 - (Ummæli #8)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu