« október 07, 2005 | Main | október 17, 2005 »
Frá Þýskalandi til Englands
Ferðalög í Evrópu eru talsvert minna spennó heldur en sögur frá Mið-Ameríku. Einhvern veginn er það lítið spennó að segja frá ferð í loftkældum lúxus lestum og öðru slíku. En allavegana, ég er núna staddur á Heathrow, bíðandi eftir flugvél heim. Er orðinn þreyttur á að ferðast, allavegana í bili.
Hef verið í Þýskalandi og Englandi síðustu viku. Var fyrst á sýningu í Köln í þrjá daga. Þaðan fór ég svo yfir til London og þaðan til York, þar sem ég hef átti fund. York er fínn lítill bær. Þar búa um 100.000 manns, en á hverju ári koma þar tvær milljónir túrista, þannig að bærinn er líflegur.
Frá York fór ég svo ásamt tveim vinnufélögum upp til Liverpool, þar sem planið var að fara á leik á Anfield. Ég ætla sennilega að skrifa eitthvað meira um þann leik og mína upplifun á Liverpool bloggið. Liverpool er bara fínasta borg, mun álitlegri en ég hafði átt von á. Hafði heyrt alls konar skrýtna og misgóða hluti um borgina, en hún kom mér skemmtilega á óvart. Það að fara á Anfield var svo auðvitað frábær lífsreynsla.
Ég hef auðvitað verið Liverpool aðdáandi síðustu 20 árin og á hverju ári eru og ég vinir mínir fullir af áætlunum um að fara á Anfield, en einhverra hluta vegna hefur aldrei neitt orðið úr þeim plönum.
Auk leiksins djömmuðum við svo í gærkvöldi. Fórum á heljarinnar skemmtistaðarölt og ég get núna fullyrt það að það er sko nóg af fallegu kvenfólki í Liverpool borg. Djammið í Liverpool er helvíti skemmtilegt fyrir utan það að ég þurfti að röfla í hverjum einasta dyraverði vegna þess að ég var í strigaskóm. Þegar inná staðina var komið reyndust staðirnir vera flottir og uppfullir af fallegum stelpum. Ég dreg hér með alhæfingar mínar um breskt kvenfólk tilbaka.
Í dag er ég svo þunnur, sit hérna í biðsalnum á fokking Heathrow, hárið á mér asnalegt, maginn á mér skrýtinn og sé rúmið mitt í hyllingum.
Skrifað á Heathrow, London, England kl. 18:50
Leit:
Síðustu ummæli
- Kristján Atli: Til hamingju Sigurjón! Þér var hlíft við þessu óþa ...[Skoða]
- Einar Örn: Sigurjón, þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. ...[Skoða]
- Sigurjón: Æ æ æ æ .... Ef niðurstaðan verður Man Utd vs Liv ...[Skoða]
- Einar Örn: Takk ...[Skoða]
- einsidan: Til hambó með þetta ...[Skoða]
- Gaui: Skál fyrir því, Einar minn! ...[Skoða]
- Hjördís Yo: ó já! Ég elska sko líka Liverpool !! ...[Skoða]
- Gummi: Jamm, var lengi að jafna mig á rangstöðunni. En Re ...[Skoða]
- Fannsa: Ömurlegt þegar dómarinn dæmdi ranglega rangstöðu.. ...[Skoða]
- Snorri: Ég sé EKKI fyrir mér að Árni komist inn á þing til ...[Skoða]
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Fjölmiðlar | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Uppboð | Viðskipti | Vinna |Gamalt:
Topp 10:
Ég nota MT 3.33