« Vinsælasta lagið á Íslandi í dag? | Aðalsíða | Heitustu málin í dag »

Nokkrar myndir

18. október, 2005

Úffff, þetta eru búnir að vera erfiðir fyrstu tveir dagar á Íslandi. Allt, allt, allt of mikið stress útaf vinnu. Á svona stundum hljómar það alveg einstaklega heimskulegt að vera í tveim vinnum. Einnar vinnu stress væri alveg nóg til að gera mig hálf geðveikan akkúrat núna.

Ég á í baksi með að koma myndunum frá MIð-Ameríku í skikkanlegt lag, þannig að þangað til að það kemst í gott stand, þá ætla ég að setja hérna inn nokkrar myndir úr ferðalaginu. Ég væri alveg til í að vera kominn aftur á ströndina í Cancun í stað þess að hafa áhyggjur af vinnumálum akkúrat þessa stundina. En svona er þetta.

Smellið á myndirnar til að fá stærri útgáfu

Ég uppá Volcan Izalco eldfjallinu, El Salvador, eftir tveggja tíma göngu í um 2000 metra hæð.

Bóndakona í Perquin, El Salvador, sem vildi endilega að ég tæki mynd af henni, þegar ég var að rölta meðfram stígnum rétt hjá húsinu hennar.

Ég hjá lítilli á rétt hjá smábænum Perquin, El Salvador, við landamæri Hondúras.

Tikal, Maya rústirnar í Gvatemala

Ég á ströndinni í Cancun

Einar Örn uppfærði kl. 20:14 | 180 Orð | Flokkur: Myndir



Ummæli (12)


Vá! Þessi strönd lítur ekkert smávegis girnilega út (er líka að deyja úr vinnustressi!). Flott mynd… og hinar líka, en þessi sérstaklega.

Sigga Sif sendi inn - 18.10.05 20:43 - (Ummæli #1)

Vá æðisleg strönd!! Flottar myndir, hlakka til að sjá fleiri :-)

Heidi sendi inn - 18.10.05 21:19 - (Ummæli #2)

Vá flottar myndir! Aettir ad saekja um hja National Geographic… Thott ad bondakonan hefur oerugglega haft thad erfitt i lifinu, tha litur hun samt ut eins og ad hun se hamingjusoem… Vid verstraent folk gaetum oerugglega laert sumt af henni… :-)

Einar i Lux sendi inn - 19.10.05 07:14 - (Ummæli #3)

Jamm, hún var síbrosandi og ýkt stolt af húsinu sínu og öðru húsi, sem var hinum megin við stíginn. Þetta var á nokkuð afskekktum stað, svo líklega hafði hún ekki séð marga túrista þarna.

Og já, ströndin í Cancun er ansi mögnuð. :-)

Einar Örn sendi inn - 19.10.05 08:39 - (Ummæli #4)

Mér þykir reyndar myndin af þér upp á eldfjallinu best af þessum. Það er eitthvað við hana, veit ekki hvort er meira heillandi, örþreyttur Einarinn eða brjálað útsýnið á bak við hann.

Hlakka til að sjá fleiri myndir, ef ekki til annars en bara að öfunda þig aðeins meira. :-)

Kristján Atli sendi inn - 19.10.05 10:31 - (Ummæli #5)

Já fínar myndir, eflaust verið frábær ferð…. Finnst samt grunsamlegt hvað gamla konan er í hreinum og fínum fötum miðað við umhverfið og aðstæður … spurning hvort hún hafi ekki átt villu eh staðar handan við hæðina :-)

Haukur Logi sendi inn - 19.10.05 13:44 - (Ummæli #6)

Maður fær náttúrulega BARA í magann við að sjá myndir frá stöðum sem að maður hefur verið á. Æðisleg síða og gaman að lesa sögurnar þínar og skoða myndirnar :-)

Stína sendi inn - 19.10.05 18:13 - (Ummæli #7)

Skemmtileg ferðasaga og flottar myndir, hlakka til að sjá fleiri.

Svana sendi inn - 19.10.05 18:50 - (Ummæli #8)

Takk takk :-)

Einar Örn sendi inn - 19.10.05 22:02 - (Ummæli #9)

Vá þúrt ógeðslega sætur. Mig langar að bíta í rassinn þinn!

Jensi sendi inn - 20.10.05 02:52 - (Ummæli #10)

mmm mig langar á þessa ströng og á þessar slóðir. Verður gaman að sjá jafnvel fleiri myndir :-)

Bjarni sendi inn - 20.10.05 13:06 - (Ummæli #11)

Æi takk Jens.

Og fleiri myndir koma eftir helgi. :-)

Einar Örn sendi inn - 20.10.05 18:42 - (Ummæli #12)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu