Á laugardaginn lét ég verða af því að snoða mig. Ég var kominn með algert ógeð á hárinu á mér. Nennti ekki lengur að hafa áhyggjur af síddinni eða greiðslunni eða öllu þessu kjaftæði.
Ég meina hei. Þannig að í mótmælaskyni er ég búinn að snoða mig. Er ekki ágætt að byrja þetta ár á upphafsreit?
Einar Örn snoðaður (12. janúar)
Uppfært: Hérna er þriðja myndin: Ég að snoða mig. Reyndar byrjaði ég bara sjálfur, en svo fékk ég aðstoð frá Þórdísi hárgreiðsluséní. 🙂
Mjög flott… líka ekki of mikið tekið af!
Ekki nærri því eins slæmt og ég hélt :rolleyes:
Ég sé enga mynd þar sem þú ert snoðaður, bara tvisvar sömu myndina þar sem þú ert að raka af þér hárið… :confused:
Æ, smá klikk. Er búinn að laga þetta. Ef sama myndin kemur upp, smelltu þá bara á Refresh 🙂
Cool. Ertu samt alveg snoðaður? Ég var að vonast eftir spegilgljáandi skalla og varð nú fyrir smáá vonbrigðum;)
Held að þú sért nú bara að herma eftir Harry Kewell en það er í góðu lagi ef svo er… ; ) nei nei en annars bjóst ég líka við gljáandi skinhead en þetta er mun betra auk þess sem skinhead er full berskjaldað í þessum djöfulsins kulda sérstaklega þegar menn eru að rölta í og úr bænum hálf skakkir…..
Nú virkar þetta 🙂 Já, sammála fyrri ummælum, bjóst við gljándi skalla en þetta er samt flott 🙂
Nei, dísus, það var ekki planið hjá mér að snoða mig alveg sköllóttann. Ég held að ég hefði fengið taugaáfall ef ég hefði gert það 🙂
Þetta er nóg breyting í bili.
Þú hefðir átt að láta allt hárið fara. Ég prófaði fyrst að snoða mig þegar ég var 13 ára. Mér fannst það mjög þægilegt og flott að ég keypti mér rakvél og hef gert þetta reglulega í 2 ár. Þegar ég klippi mig þá læt ég allt hárið fjúka og er alveg sköllóttur. Langþægilegast og best. Engar áhyggjur af hárinu.