Bulls geta eitthvað!!!

Fyrirgefið, en gerið þið ykkur grein fyrir því að Chicago Bulls eru í [6. sæti](http://sports.espn.go.com/nba/standings) í Austurdeildinni?! Sjötta sæti! Einum og hálfum leik á eftir meisturum Detroit! Liðið, sem hefur ekki komist í úrslitakeppnina síðan Jordan hætti og byrjaði leiktíðina 0-9!

Liðið, sem byrjaði síðasta leik var skipað Luol Deng, Antonio Davis, Othella Harrington, Kirk Hinrich og Chris Duhon. Jamm, nöfn sem allir Íslendingar þekkja. Besti leikmaðurinn er hvítur og heitir Kirk Hinrich! Þetta lið er alveg stórkostlega magnað. Meira að segja Eddy Curry og Tyson Chandler eru byrjaðir að spila vel. Mest hefur þó munað um nýliðana Luol Deng og Ben Gordon.

En þetta er magnað og yndislega skemmtilegt, því Bulls hafa ekki getað neitt síðan ég byrjaði að halda með þeim. Ég ólst nefnilega upp sem Boston Celtics aðdáandi, en heillaðist af Bulls þegar ég bjó í Chicago. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig mér tókst að heillast af þeim, þar sem Jordan var þá hættur og liðið gat ekki neitt, en allavegana það gerðist. Mikið væri nú gaman ef þeir kæmust í úrslitakeppnina.

Annars var ég einmitt að koma úr körfubolta og þar með eru komnir þrír dagar í röð þar sem ég hef verið í íþróttum á kvöldin. Ég er gjörsamlega uppgefinn og orðinn ansi pirraður á að bíða eftir pizzunni minni.

6 thoughts on “Bulls geta eitthvað!!!”

  1. Þeir eru reyndar í 7.sæti, þ.e. ef úrslitakeppnin myndi byrja núna.

    Þeir eru heitasta lið deildarinnar, með 9-1 í síðustu 10 leikjum.

    En þeir eru náttúrulega í austrinu….

  2. Jú það er þannig að efstu lið riðlanna eru í sætum 1 og 2 þrátt fyrir að vinningshlutföll benda til annars.
    En annars er þetta náttúrlega snilld, nú koma Bullsararnir sterkir inn í úrslitakeppnina.

  3. Frábærir tímar fyrir Chi fólkið, loksins myndi einhver segja. Krause klúðraði þessu en JP virðist vera að taka rétta stefnu.

    Gordon á nú samt ekki mikið skilið að vera á þessum lista yfir stærstu breytingu því hann er ennþá alltof mistækur og óáræðanlegur, jafnvel þó hann spili illa í síðustu leikjum vinna þeir.

    Og þú gleymir Nocioni (sem ætti að vera uppáhalds maðurinn þinn enda Argentínu maður) en hann er áræðanlegur, traustur varnar sem á eftir að verða mjög góður fyrir þetta lið.

    Að lokum var Othello bara inná því Curry var meiddur og spilaði aðeins um 15 mín.

    En til hamingju, Scott Skiles er snillingur.

  4. Jamm, ég veit með Othello. Fannst það bara enn súrealískara að hann skyldi vera í liðinu.

    Þrátt fyrir að Gordon sé mistækur, þá er hann nú nýliði en er samt þriðji stigahæsti í liðinu á eftir Hinrich og Curry.

    Ég vissi ekki um þessa reglu með að efstu liðin í riðlunum hefðu forgang. Ég meina Boston er efst og nær ekki einu sinni 50% hlutfalli.

    En já, Skiles virðist vera að gera virkilega góða hluti. Ég var fúll þegar Cartwright var rekinn, en það virðist hafa verið rétt. Sem er gott 🙂

  5. Enþá magnaðara er að Bulls eru fyrsta liðið EVER til að ná uppí 50% vinningshlutfall eftir að hafa byrjað tímabilið 0-8. Þeir gerðu meira að segja betur og byrjuðu 0-9! :biggrin:

Comments are closed.