Jæja, uppboð. [Nánari upplýsingar um uppboðið hér](https://www.eoe.is/uppbod).
Hérna er smá dót úr skápunum hjá mér. Á eftir mun ég hins vegar bjóða upp meira spennó hluti 🙂
Þessu uppboði lýkur klukkan 23:59 á sunnudagskvöld.
At-At
Ég fékk At-At í gjöf frá mömmu og pabba þegar ég var lítill og man að sjaldan eða aldrei hef ég verið jafn glaður. At-At ið er í ágætu ástandi, en alls ekki fullkomnu. Það virka ekki lengur byssurnar sem einu sinni virkuðu og ég hef leikið mér mikið með það.
Þetta hefur persónulegt gildi fyrir mig og því er lágmarksboð 5000 kall.
Matríóskur
Þessar matríóskur með rússneskum leiðtogum keypti ég á markaði í St.Pétursborg. Frá síðasta keisaranum til Pútíns. Lágmarksboð 1000 kall.
Ég býð 3000 í matríóskurnar.
1500 kr í At-At
Hansi, einsog ég sagði í lýsingunni:
>Þetta hefur persónulegt gildi fyrir mig og því er lágmarksboð 5000 kall.
Þannig að 1500 kall er ekki nóg.
afsakaðu þetta Einar las textann ekki nógu vel. En ég þarf aðeins að velta 5000 kallinum betur fyrir mér.
:blush:ég býð 4000 í matríóskurnar
Uppboði lokið.
Sigurvegari Sóley Sturludóttir fyrir matríóskurnar 4.000 krónur.