Hvað gerir piparsveinn í Reykjavík á föstudagskvöldi?
Jú, hann býr til [MySpace síðu fyrir veitingastaðinn sinn](http://myspace.com/serrano_is). Sumir búa til MySpace síðu fyrir [gæludýrin sín](http://www.myspace.com/pancakesprincess), en þar sem ég á engin gæludýr þá var Serrano besti kosturinn. Ég var til klukkan 2 í gærnótt að vinna í þessari merku síðu.
En annars þá er ekki neitt svakalegt markaðsplan á bakvið þessa MySpace síðu. Stefni ekki á að spam-a MySpace síður kúnna Serrano, heldur mun ég aðeins senda út tilkynningar ef eitthvað mjög spennandi er að breytast á Serrano. Og svo mun ég sennilega prófa að bjóða MySpace notendum uppá einhver voðalega flott tilboð einstaka sinnum.
En allavegana, núna getið þið allavegana orðið vinir [uppáhaldsveitingastaðar míns](http://www.myspace.com/serrano_is)!
Þetta MySpace rugl er orðið einum of. :confused:
Hvaða hvaða. Þú hljómar einsog gamall kall.
Ég ákvað að prófa þetta tískufyrirbæri og álpaðist til að skrá mig, og svei mér þá ef líf mitt hefur ekki gjörbreyst! 😯
thanksssss :biggrin2:
núna veit ég af hverju Pönnukakan hefur fengið þennan gríðarlega fjölda af heimsóknum á síðuna sína!! :tongue:
Hehe, vonandi að það dugi til þess að hún hitti draumaprinsinn/prinsessuna. 🙂