Bílastæðin við Suðurlandsbraut

Ég hef búið 800 metra frá Suðurlandsbraut síðustu fjögur ár.  Ég keyri götuna oft í mánuði og hjóla stígana í nágrenninu oft í viku.  Krakkarnir mínir taka strætó þaðan á æfingar í Skeifunni og Víkinni – og þangað sækjum við okkur mat á veitingastaðina.

Það hefur verið merkilegt að fylgjast með umræðunni um breytingar á Suðurlandsbrautinni til að undirbúa fyrir Borgarlínu og Þjóðarhöll, sem mun vonandi einhvern daginn rísa og valda því að krakkarnir mínir þurfi ekki að taka strætó í Fossvog til að æfa handbolta.  Það má vel vera að hugmyndir borgarinnar séu ekki fullkomnar en erfiðast á ég með að skilja hvers vegna svona margir vilji meina að þessar breytingar muni bitna á þeim sem sækja sér þjónustu við Suðurlandsbraut.

Ég hef séð því haldið fram að öll bílastæðin séu lífsnauðsynleg fyrir þá þjónustu sem er við Suðurlandsbrautina.  Ég skil þær áhyggjur ágætlega þar sem ég rek vinsæla veitingastaði í Borgartúni og í Hafnarfirði þar sem öll stæði eru oft upptekin jafnvel áður en starsfólkið okkar mætir á hverjum morgni til að undirbúa daginn.

En hvernig er ástandið á Suðurlandsbraut og þessum bílastæðum?  Í síðustu viku fór ég í klippingu í Ármúlanum og þegar ég hjólaði Suðurlandsbrautinni í áttina að skrifstofunni minni þá ákvað ég að skoða ástandið á bílastæðunum.  Ég var þarna klukkan ca 9.30 – áður en nánast allar búðir og veitingastaðir við Suðurlandsbrautina opna.

Hinn frábæri pízzastaður Olifa opnar klukkan 11.30. Tveimur tímum áður eru öll stæði fyrir framan staðinn upptekin.

Zorbian opnaði á síðasta ári á Suðurlandsbraut. Áður en sá staður opnar klukkan 11 eru öll stæðin farin.

Nings hefur verið á Suðurlandsbraut svo lengi sem elstu menn muna. Þar eru líka öll stæði upptekin tveimur tímum fyrir opnun.

Askur hefur líka verið þarna lengi og þar eru öll stæði full klukkan 9.30 þrátt fyrir að staðurinn opni ekki fyrr en 11.30.

Lemon er sá staður sem opnar fyrst af veitingastöðunum eða klukkan 10. Hálftíma fyrir þá opnun eru þó öll stæðin upptekin við staðinn.

Það sama átti við um Rafha búðina þar sem flest stæðin voru frátekin hálf´tíma áður en sú búð opnaði.

Einu stæðin sem voru laus voru þau sem Íslandsbanki og Sýn höfðu merkt vel sem stæði fyrir sína viðskiptavini. Það geta þau eflaust gert í krafti stærðar þess pláss sem þessi fyrirtæki leigja við götuna – eitthvað sem minni veitingastaðir geta ekki.

Ég leyfi mér að kasta fram þeirri kenningu að stæðin séu ekki notuð af viðskiptavinum sem sækja sér þjónustu á Suðurlandsbraut, heldur fyrst og fremst af því starfsfólki sem vinnur þarna í húsunum.

Fyrir starfsfólkið á Suðurlandsbraut hlýtur betra aðgengi með Borgarlínu að vera jákvætt fyrir utan að það er væntanlega hlutverk fasteignaeiganda að sjá leigjendum sínum fyrir bílastæðum – ekki Reykjavíkurborg. Hinir sömu fasteignaeigendur gætu svo hjálpað þessum fínu veitingastöðum og búðum, sem eru þarna, með því að merkja þeim tímabundin bílastæði næst byggingunum.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *