Það var ekki leiðinlegt þegar við Diðriksmenn unnum Tekk í gær.
einarorn.com
Núna á ég lénið einarorn.com
Moby
Jæja, búinn að fá tvo miða á Moby. Hann spilar í Aragon í Chicago 6. október. Ég fór í þennan sal að sjá Smashing Pumpkins og er þetta flottur salur. Ticketmaster reyndist mér ágætlega í þetta skiptið. Ég er búinn að liggja á Refresh takkanum í 5 mínútur og það dugði til að ná miðum. Vei vei!!
Afmæli
Ég þakka þeim, sem óskuðu mér til hamingju með afmælið um daginn. Takk takk. Annars var ég að klára að vinna og sit núna fyrir framan tölvuna að bíða eftir því að miðar á Moby í Chicago fari á sölu. Þeir fara á sölu á Ticketmaster klukkan 10 að Chicago tíma, eða eftir um 5 mínútur. Vonandi næ ég miðum.
Leiðindi
Mikið óskaplega leiðast mér þessar umræður á milli FC Diðriks og Orators. Á fotbolta.is hefur verið þrasað stanslaust síðustu viku. Einnig var einstaklega leiðinilegt að vera fyrir utan völlinn þegar á leik þessara liða stóð, því þar var mikið verið að rífast og menn fóru meira að segja að uppnefna hvorn annan einsog smákrakkar.
Ég tek þessa leiki í utandeildinni ekkert alltof alvarlega, maður leggur sig náttúrulega í leikina en ég nenni ekki að vera að deila um úrslit eða kærumál.
Jörðin
Náungi, sem heitir Marshall Hall heldur því fram að jörðin hreyfist ekki.
Bleiki pardusinn
Jibbííí, ég á afmæli í
Jibbííí, ég á afmæli í dag. Er orðinn 23 ára. Þá er ekki úr vegi að kíkja á stjörnuspána mína í dag:
Leo: (July 23–Aug. 22)
the pale morning mist reveals your prints on the fat dead prostitute’s ass
Snilld
Þessi grein er líka snilld.
Snilld.
Þessi grein er snilld.