« Fyrirlitning á frjálshyggju | Aðalsíða | Drukkið meðal sósíalista »

Quarashi í Bandaríkjunum

febrúar 28, 2002

Snillingarnir í Quarashi, sem er að mínu mati besta íslenska hljómsveitin virðast eitthvað vera að meika það hérna í Bandaríkjunum. Þeir eru að gefa út disk 15.apríl og svo eru þeir að fara á tónleikaferð með einhverjum fleiri hljómsveitum.

Ég sá svo að þeir eru inná vinsældalistanum hjá einni af mínum uppáhaldsútvarpsstöðvum, Q101 (sjá hér, endilega kjósið þá). Q101 er stærsta útvarpsstöðin í Chicago að ég held.

Þeir eru líka með myndband við Stick 'Em Up, sem er víst í spilun á MTV2 (ég er því miður bara með MTV). Myndbandið er flott.

Ég rakst líka á snilldar myndband, sem fjallar um þá fjóra. Þeir gera snilldarlegt grín af þeim ranghugmyndum, sem flestir hafa um Íslendinga. Alger snilld!

Einar Örn uppfærði kl. 20:12 | 122 Orð | Flokkur: Tónlist



Ummæli (1)


Uhm…er þetta gömul síða? Það er talað um Quarashi en ekkert minnst á nýja lagið: mess it up! Eða að Hössi sé hættur. :-) :-) Jahá…þetta er síðan 28 feb.2002…oki, geddit.
Love, peace and mickeymouse. :-)

Kwarani. sendi inn - 22.07.03 21:37 - (Ummæli #1)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu