« júní 14, 2004 | Main | júní 20, 2004 »

Leiðindi og góð tónlist

júní 15, 2004

Úff, mér leiðist svo að það er ekki fyndið. Mig var búið að hlakka til að fara í golf og horfa svo á Hollands leikinn á upptöku. En golfið klikkaði, svo ég horfði á Þýskaland-Holland í beinni. Markið hjá Nilsteroy var hreint út sagt ótrúlegt. Það reddaði allavegana deginum (og hugsanlega næstu vikum) fyrir mér. Einnig var rosa gaman að sjá minn mann, Baros skora fyrir Tékka.

Allavegana, ákvað að ég gæti ekki lengur dregið það að strauja skyrturnar mínar. Sem betur fer, þá krefst starf mitt ekki að ég sé í jakkafötum á hverjum degi, en ætli ég verði ekki að vera í jakkafötum svona 3-4 sinnum í mánuði, auk þess þegar ég fer erlendis. Þess vegna var ég eiginlega tilneyddur til að fara að strauja. Svei mér þá, ég held að vanhæfni mín í strauji eigi sér engin takmörk. Ég get ekki fyrir mitt litla líf straujað skyrtu almennilega. Ef það er eitthvað í þessum heimi leiðnlegra en að strauja, þá hef ég allavegana ekki prófað það.


Annars er það skrítið þegar maður uppgötvar gamlar plötur aftur. Það gerðist fyrir mig með Joshua Tree fyrir nokkrum dögum. Síðan er hún nánast búin að vera á repeat. “Red Hill Mining Town” og “Running to Stand Still” eru lög, sem ég kunni aldrei að meta þegar ég var 10 ára gamall og keypti mér Joshua Tree á vínil. Held í raun að ég hafi bara hlustað á “With or Without you” á repeat. En mikið er þetta æðisleg plata. Held svei mér þá að “Red Hill Mining Town” sé með allra bestu U2 lögunum.

Annars hef ég verið að hlusta á “Fly or Die” með N.E.R.D. í ræktinni að undanförnu. Gríðarlega hressandi tónlist, þrátt fyrir að platan hafi ekki fengið góða dóma þá fíla ég hana.

Einnig hefur Velvet Underground & Nico verið á rípít hjá mér. Þetta er svo mikil snilld að ég verð að nálgast meira efni með Velvet Underground og Lou Reed. Ætli maður reyni svo ekki að draga einhvern með sér á tónleikana í ágúst.

339 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Tónlist

Fahrenheit 911

júní 15, 2004

Nýja Michael Moore myndin verður frumsýnd í næstu viku og hefur hún verið bönnuð innan 17 ára. Hægrimenn eru að fara á taugum og hvetja liðsmenn sína til að mótmæla því við kvikyndahúsaeigendur að myndin verði sýnd.

Allavegana, veggspjaldið fyrir myndina er fyndið og maður verður spenntur við að horfa á trailerinn. Ég er sennilega mest spenntur yfir þessari mynd af öllum stóru myndum ársins.

65 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Kvikmyndir