« Geturðu sent mér email um þetta? | Aðalsíða | My hump, my lovely lady lumps »
Nýtt á Serrano - Jibbí
Jæja, mánuði á eftir áætlun, þá erum við búin að uppfæra matseðilinn á Serrano. Staðurinn átti nýlega þriggja ára afmæli og ætluðum við að kynna nokkra nýja rétti í tilefni þess. Sú kynning tafðist þó aðeins, en í dag erum við byrjuð að selja fjóra nýja burrito-a.
Þessi burrito-ar eru ólíkir því, sem við seljum í dag, að því leiti að innihaldið er fyrirfram ákveðið. Það er, að í stað þess að kúnninn velji hráefnið í burrito-inn sinn, þá er hráefnið í þessa nýju burrito-a fyrirfram ákveðið. Það er þó auðvitað hægt að biðja um að breyta frá uppskriftinni.
En allavegana, nýju burritoarnir eru þessir:
BBQ Burrito
Kjúklingur, Hrísgrjón, Svartar Baunir, Pico de Gallo Salsa, Maís, BBQ Sósa, Muldar Nachos flögur og Sýrður Rjómi
Fajitas Burrito
Kjúklingur, Hrísgrjón, Pico de Gallo Salsa, Steikt Grænmeti, Maís, Ostur og Sýrður Rjómi.
Grískur Burrito
Hrísgrjón, Kjúklingur, Pico de Gallo Salsa, Steikt Grænmeti, Kál, Maís, Feta Ostur, Tzatziki Jógúrt Sósa
Thai Burrito
Hrísgrjón, Kjúklingur, Pico de Gallo Salsa, Steikt Grænmeti, Maís, Salthnetur, Satay Sósa.
Við höfum verið að prófa þetta að undanförnu á vinum og vandamönnum og höfum fengið gríðarlega góðar viðtökur.
En allavegana, endilega kíkið uppá Serrano í Kringlunni þegar þið klárið jólainnkaupin og prófið nýju réttina. Fyrir ykkur, sem hafið ekki enn prófað, þá hvet ég ykkur auðvitað til að drífa ykkur. Serrano býður uppá ljúffengan og mjög hollan skyndibita.
Ummæli (8)
hey.. hvernig væri að opna einn stað í Köben. Vantar alveg svona góðan skyndibitastað hérna. Eina sem ég finn hérna eru bara kebabstaðir og mcdonalds.
Oh, nú fæ ég vatn í munninn Fyrst að þið eruð að spá í að færa ykkur út fyrir höfuðborgarsvæðið, er þá ekki Akureyri næsti viðkomustaður Mér finnst það nauðsynlegt
Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".
Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote
Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.
|
|
Ummæli:
Muna upplýsingar?
|
backlink
Nammi namm, ég ætla prófa Grískan Burrito strax eftir prófin