Mér tókst að fara á djamm í gærkvöldi. Tveir miklir snillingari sáu til þess. Fórum á Sólon og Felix og skemmtum okkur frábærlega. Ætluðum fyrst inná Hverfis, en biðröðin þar klukkan 1 var fáránleg. Því enduðum við á Sólon, þar sem var engin biðröð.
Inná Sólon dönsuðum við heillengi, en vorum á endanum orðnir þreyttir, svo við fórum á Felix, sem er afskaplega skrítinn staður. Ég hætti mér varla á hliðargangana, enda er fólk í hinum misjöfnustu athöfnum þar samkvæmt myndasíðunni á staðnum.
Eyddi mestum tíma á dansfólfinu, sem er skrítinn staður. Uppá sviðinu dansaði hópur af Könum, sem virtust kunna lög, sem ég hef aldrei heyrt áður, utanbókar. Stelpurnar voru ekki jafn sætar og á Sólon en þær virtust þeim mun meira vera á þörfinni. Allavegana var klipið heldur oft í rassinn á mér á þessum stutta tíma, sem ég var þarna inni.
Annars þá var kvöldið frábært. Alger snilld! 🙂
Sá magnaði atburður gerðist í gær að í íbúðinni minni var enginn bjór til. Þess vegna drakk ég rauðvín í gær, alveg þangað til að ég fór inná skemmtistaðina þegar ég skipti yfir í vodka (er það ekki full gay að drekka rauðvín inná bar?). Allavegana, í dag var ég ekkert þunnur! Yndislegt, alveg hreint. Kannski er rauðvín bara málið.
Úff, þetta var gaman í gær en dagurinn í dag hefur samt verið með erfiðara móti… en þökk sé Britney (sem sómar sér afar vel á skjánum hjá mér) þá komst ég í gegnum þetta. Takk Einar :biggrin2:
hey það er augljóslega ástæða fyrir því að sólon og felix voru EINU biðraðalausu staðirnir í bænum :biggrin2:
Felix smelix ..! Það var bara stuð hvar sem við vorum :biggrin: allavegana var þetta gott frá byrjun til enda. Þakka pent fyrir mig strákar! skál.
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum að sjá hvorki þig né Gumma Jóh á Hverfisbarnum á föstudaginn 😉
Hey, maður verður nú einhvern tímann að hvíla sig 🙂
Plús það að ég held að gummi jóh sé alltaf á Vegamótum.
Verður þú hvort eð er ekki núna öll laugardagskvöld á hverfis? :biggrin2: