Þetta er svokallað punktablogg
- Í kvöld tókst mér að sturta í mig hálfri dós af lífrænu jógúrti áður en bragðlaukarnir mínir áttuðu sig á að eitthvað var grunsamlegt við bragðið. Við nánari skoðun kom í ljós að þessi ágæta jógúrt rann út fyrir rúmum þrem vikum. Núna hefði verið gott að búa með síðasta-söludags-stimpla-fasista á heimilinu.
- Mig langar að skrifa um helgina og djammið, sem ég var á. Við sögu koma samskipti á milli nágranna, Barinn, Vegamót, Prikið, Ben Folds, Q-tip og fleira. En ég veit ekki hvernig ég get gert þá færslu áhugaverða.
- Og kannski blanda ég inní þá færslu pælingum mínum varðandi sambönd, sem ég var byrjaður á í síðustu viku.
- Mæli með þessum pistli frá Jensa.
- Ég verð að koma því líka að að Jóhanna Sigurðardóttir er snillingur. Hún hefði mátt vera meira áberandi í þessari kosningabaráttu og Helgi Hjörvar líka.
- Nýja Modest Mouse platan er afbragðs góð. Sérstaklega byrjar hún stórkostlega. Tvö fyrstu lögin eru algjörar andstæður, en passa samt svo rosalega vel saman. Dashboard er lag ársins hingað til.
- Eru menn ekkert að djóka með það hversu mikið drasl Lost þátturinn í kvöld var? Ha?
- Ég verð að játa það að ég fatta ekki af hverju vinsælasta blogg landsins er vinsælasta blogg landsins. En ég fatta heldur ekki Spaugstofuna, né skil ég af hverju 40% kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða af hverju fólk vill breyta Reykjavík í bandaríska bílaborg, eða hverjir kaupa plöturnar á listanum yfir 30 mest seldu plöturnar í fyrra. Kannski skil ég einfaldlega ekki þessa þjóð.
“síðasta-söludags-stimpla-fasista” hahaha
Já, þekkirðu einhvern slíkan? 😉
já ég verð nú að segja það að jóhanna sigurðar hefur svona 100 x betri áhrif á mig heldur en fuglahræðan í kjördæmi hinum helmingi reykjavíkurborgar. Ástæðan fyrir því að fólk kýs sjálfstæðisflokkinn … ég efaðist um flokkshneygð mína á tímabili – tel þetta gangast jafnt á það að gerast bækjúríus á unglingsárum – en málið er .. the big bottom line er – að sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn með stefnuskrá og mannskap sem ég treysti til að stjórna landinu –
Það þýðir ekkert að predika jöfnuð ef þú getur ekki virt skoðanir annarra – það heitir þröngsýni – eitthvað sem þið poolararnir þekkið vel (/insert biturleiki gagnvart fóbolta) … ég var ekki alveg að ná skotinu þarna með bandarísku bílaborgina – en ég er búin að liggja yfir eitthverjum helvítis lagagreinum á ensku í allt kvöld og man varla hvað ég heiti lengur.
Gott að bloggið er komið í gang aftur 🙂
já og mæli með smá lesningu fyrir þig minn kæri;
http://theladystardust.blogspot.com/2007/05/kratabli-sem-g-b.html