Þetta er ansi skemmtileg myndasería, en þarna eru myndir af fjölskyldum í ýmsum löndum heimsins og öllu því sem sú fjölskylda borðar á einni viku. Að sjá muninn á milli landa er oft sláandi. Kemur ekkert sérstaklega á óvart að sjá kók neysluna í Mexíkó. Einnig er sláandi að sjá hversu hátt hlutfall af neyslu bandarísku fjölskyldunnar er pakkavara.
(via Kottke)
Skemmtilegt. Kemur mér ekki á óvart það er enginn “matur” hjá bresku fjölskyldunni, enda virðast flestir þar nærast meira og minna á kexi, snakki, majonesi og sultu!
Jamm, það er magnað að sjá að eftir því sem fólk verður ríkara þá verður matarkarfan ógirnilegri.