**Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. [Hérna er yfirlitssíðan](https://www.eoe.is/uppbod2007) fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo [kynningarfærslan fyrir uppboðið](http://eoe.is/gamalt/2007/12/12/19.57.46)**
* * *
Jæja, þá er það fyrsti hlutinn af uppboðinu mínu árið 2007 til styrktar börnum í Mið-Ameríku. Sjá nánar um uppboðið [hér](http://eoe.is/gamalt/2007/12/12/19.57.46//)
Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst á einarorn@gmail.com og ég set inn þá upphæð. Í þessum fyrsta hluta uppboðsins ætla ég að bjóða upp ýmis tæki.
Uppboðinu lýkur klukkan 23.59 á mánudagskvöld (17.des)
JVC Sjónvarp
Þetta er 2-3 ára gamalt 32″ JVC sjónvarp af gerðinni JVC AV-32H40SU. Sjónvarpið er í mjög góðu ástandi og fjarstýringin fylgir. Það kostaði einhvern 90.000 kall þegar ég keypti það fyrir 2-3 árum.
Sjá mynd [hér](http://www.flickr.com/photos/einarorn/2106359674/in/photostream/)
Lágmarksboð 10.000
ATV 21 tommu sjónvarp
Þetta er sjónvarp sem hefur verið inní geysmlu hjá mér og ég held að ég hafi ekki horft á það í þrjú ár. Þótt ótrúlegt megi virðast þá nægir mér að hafa eitt sjónvarp og tvær tölvur á heimilinu. Þetta er 21 tommu sjónvarp með fjarstýringu og er í mjög góðu ástandi. Skoða mynd. Lágmarksboð: 5000 kall
Samsung U600 GSM sími
Þennan síma keypti ég í sumar. Hann er örlítið rispaður, en samt ekki mikið. Ég myndi segja að hann væri í mjög góðu ástandi. Kostaði yfir 30.000 krónur útí Svíþjóð í apríl. Hleðslutæki fylgir.
Þetta er með flottustu símum á markaðinum í dag. Eina ástæðan fyrir því að ég er að selja hann er að ég á iPhone.
Sjá mynd [hér](http://www.flickr.com/photos/einarorn/2106363366/in/photostream/)
Lágmarksboð 10.000 krónur.
iPod Nano 4gb
Þessi iPod er EKKI í neitt sérstaklega góðu ástandi. Hann er mjög mikið notaður og mjög rispaður, en hann virkar alveg og með honum fylgir USB snúra og headphones.
Sjá mynd [hér](http://www.flickr.com/photos/einarorn/2105585819/in/photostream/)
Lágmarksboð 1.000 krónur.
Samsung SGH-E730 GSM sími
Nokkra ára gamall samlokusími, sem hefur reynst mér gríðarlega vel. Er samt MJÖG mikið notaður. Ábyggilega fínn sem fyrsti sími handa krökkum. Hleðslutæki fylgir.
Sjá mynd [hér](http://www.flickr.com/photos/einarorn/2106361734/in/photostream/)
Lágmarksboð 1.000 krónur.
iPod Nano – 1500 krónur
Stakur sómi af þessu alltaf hjá þér Einar.
Gætirðu nokkuð mælt fyrir mig hvað 32´ sjónvarpið er “feitt” þ.e. hversu mikið pláss tekur kassinn bak við það?
Sjónvarpið er svona 55-60 cm djúpt.
Takk, Hjalti
úff þá er það of stórt:/
Kaupa bara stærri skáp! 🙂
Býð 2.000 í Ipodinn. Gott framtak, eins og venjulega
Býð 10.000 í Samsung U600 símann.
Frábært framtak!
2500-í iPod Nano
Býð 15.000 í Samsung U600 símann.
Býð 10.000 í JVC sjónvarpið.
Frábært framtak hjá þér Einar!
2750 fyrir Ipodinn. 🙂
iPod Nano – 3500
Býð 16.000 í Samsung U600 símann.
býð 11000 í JVC tele-ið
þetta er æðislegt hjá þér, man eftir því þegar þú gerðir þetta í fyrra og gaman að þú haldir því áfram.
frábært framtak, þú ert til fyrirmyndar!
Ég býð 13 þúsund í JVC tækið.
Býð 15.000 kall í JVC tækið.
Frábært framtak, vona að þetta gangi vel hjá þér.
Býð þúsund kall í Samsung SGH-E730 GSM símann
JVC….býð 16.000
Býð 4000 í ipodinn
5.000 fyrir i-podinn
Býð 20.000.- í JVC tækið
5000 kall í 21 tommu sjónvarpið 🙂
kveðja
Maja
5500 IPOD
Samsung U600 GSM 17.000
Þetta uppboð klárast í kvöld. Til að taka saman hæstu boð:
JVC sjónvarp: 20.000 (Hörður)
ATV sjónvarp: 5.000 (Maja)
Samsung U600: 17.000 (skúli)
iPod: 5.500 (Þórhallur)
Samsung SGH: 1.000 (Bóndi)
Það er búið að bjóða 10.000 í ATV sjónvarpið. Sjá hér
22.000 í jvc sjónvarpið
Samsung U600 GSM 18.000
Ok, uppboðið búið. Það barst tilboð í Samsung símann, sem að póstforritið mitt skráði klukkan 23.58.45 uppá 18.500. Ég tel þetta vera nógu seint til þess að ætla að enginn hefði geta boðið hærra fyrir 23.59
Þannig að hæstu boð eru:
JVC sjónvarp: 22.000 (Gulli)
ATV sjónvarp: 10.000 (Þórhallur Jóhannsson)
Samsung U600: 18.500 (Nafnlaust í gegnum email)
iPod: 5.500 (Þórhallur Jónsson)
Samsung SGH: 1.000 (Bóndi)
10.000 fyrir ipod
Uppboðinu er lokið, Alexander. Þú varst of seinn að bjóða í þennan hlut.