Ó hvað ég elska þetta lag…
Ég heyrði þetta í sjónvarpsþætti áðan. Ég held að þetta hljóti að vera meðal bestu laga sem ég hef nokkru sinni heyrt á tónleikum á ævinni. Ég fletti upp tónleikunum, sem ég sá með Radiohead í Grant Park í Chicago árið 2001, og fann þar set listann. Hann er vægast sagt ótrúlega góður. Sérstaklega voru uppklöpp 2 og 3 ógleymanleg. Ég skrifaði einu sinni á þessari síðu um bestu tónleikana, sem ég hef farið á á ævinni. Þá setti ég Radiohead tónleikana í annað sætið á eftir Roger Waters í Houston.
Það voru mistök. Radiohead tónleikarnir í Grant Park eru bestu tónleikar, sem ég hef farið á.
Ég er einmitt ekki frá því að Radiohead í Milanó síðasta sumar séu að skríða upp fyrir Pink Floyd í Gautaborg ’94 svona eftir því sem maður meltir þetta meira, bæði bönd eiga reyndar sameiginlegt að þetta eru ekki bara tónleikar heldur upplifun meira.
Já, nákvæmlega. Á Waters tónleikunum var ég einfaldlega uppveðraður með að hafa actually séð Roger Waters.