Þar sem að það búa ekki allir í Svíþjóð (ógó hallærislegt!) og það horfa ekki allir á sænsku undankeppni Eurovision (vá) og það lesa ekki allir Facebook síðuna mína (hva?) þá er hér (via Birkir) stórkostlegt tímamótamyndband frá undankeppninni á laugardaginn. Ég og Margrét horfðum á þetta (seinni hlutann það er) eftir að ég hafði dregið hana labbandi um hálfa Södermalm til þess að uppfylla laugardagsþörf mína fyrir alvöru hamborgara (sem fást á Mississippi Inn fyrir þá sem vilja vita).
Allavegana, hérna er sjálfur Ivan Drago, skúrkurinn úr Rocky IV, mættur uppá svið á þessari sænsku söngvakeppni (sem er rugl vinsæl hérna í Svíaríki) og mæmar lag og dansar og spilar á trommur og brýtur spýtur og ég veit ekki hvað. Þetta er svo lygilega fáránlegt að maður þarf í raun að horfa á þetta þrisvar til að meðtaka alla snilldina (Dolph mætir á sirka 0.56).
Ekki nóg með að Dolph hafi næstum því drepið Rocky, heldur endurskilgreinir hann núna á sextugs aldri hvernig skemmtiatriði í söngvakeppni eiga að vera. Þetta verður allt niðrávið frá þessu mómenti síðasta laugardagskvöld. Því miður.
Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu, þetta er bara alveg ótrúlega krúttlega sænskt!
Dolph er MAÐURINN…
Maður fékk svona nettan kjánahroll yfir atriðinu,.. en Svíarnir fíla þetta í botn. Mér fannst hinsvegar lögin hálf slöpp,….
Borgþór
Kjánahroll? Uss, þetta var tímalaus snilld og yfir slíku fær maður ekki kjánahroll. 🙂
Sammála … þetta er snilld.
Bara flott…..ekkert annað