Þegar ég var með vini mína í heimsókn fyrir einhverjum dögum þá fórum við (eða aðallega ég) að ræða hver væri afskekktasti staður á jörðinni. Við erum jú frá Íslandi, sem flestum finnst afskaplega afskekkt – en það eru klárlega til umtalsvert einangraðari staðir. Ég fletti þessu upp á Wikipedia og þá fann ég eyjaklasann Tristan da Cunha. Þessar eyjur eru samt ekki afskekktustu eyjur í heiminum – sá heiður á Bouvet eyja (sjá á Google Maps), sem er norsk eyja suður af Suður-Afríku, sem er lítið annað en jökull.
Tristan de Cunha er þó afskekktasti byggði staður í heimi. Eyjaklasinn liggur á milli Suður-Afríku (2.816 frá Suður-Afríku) og Suður-Ameríku (3.360 frá Suður-Ameríku). Stærsta eyjan er um 100 ferkílómetrar og þarna búa 270 manns. Eyjurnar tilheyra Bretlandi. Allir á eyjunni eru bændur og einn helsti tekjustofninn er sala á frímerkjum. Flestallir íbúanna eru afkomendur breskra sjóliða, sem settust þarna að 1800 og eitthvað.
Allar myndir frá þessum eyjum minna ótrúlega mikið á Ísland. Höfuðstaðurinn, Edinburg of the Seven Seas líkist íslensku sveitaþorpi ansi mikið og flestar myndir af eyjunum á Flickr gætu þess vegna verið teknar á Íslandi eða á Færeyjum þótt þessar eyjur séu tugþúsundum kílómetra frá Íslandi.
Allavegana, fyrir landafræðinörd einsog mig, þá fannst mér magnað að lesa um þessar eyjur.
* * *
**Uppfært 3. julí** Ég fékk póst frá fólkinu sem setti inn myndirnar á Flickr, þar sem viðkomandi tók eftir mikilli traffík frá þessari vefsíðu. Viðkomandi sagði að þau hefðu ferðast á báti í heila viku frá Suður Georgíu og vegna erfiðs sjós gátu þau ekki komist á gúmmíbát í tvo heila daga að Tristan de Cunha eyjunni. Loks hafi einhverjir eyjaskeggjar komið og sótt þau útí bátinn og farið með þau á land. Hérna má sjá restina af myndunum úr ferð þeirra. Og fyrir áhugasama þá er hægt að kaupa ferðir til þessara eyja hérna.
Takk fyrir þetta Einar. Frá því að ég var gutti hef ég alltaf verið óður í að lesa bækur sem fjalla um siglingar manna víðsvegar um heiminn og Tristan da Chuna kom nokkrum sinnum upp. Gaman að fá að sjá þessar eyjur á mynd. Var búinn að reyna nota google leit fyrir nokkrum árum og ekkert gekk (kannski klaufaskapur hjá mér) En annars takk fyrir þetta YNWA
Ekkert mál.