Blaðið US News er búið að gefa út nýjan lista yfir bestu háskóla í Bandaríkjunu, en þetta er vanalega sá listi, sem flestir horfa til þegar háskólar eru bornir saman.
Ég er náttúrulega stoltur yfir því að minn gamli skóli, Northwestern er kominn uppí 10 sæti, við hlið Columbia en Northwestern var í 12. sæti í fyrra. Það er gaman að því að Northwestern er kominn upp fyrir University of Chicago.
Annars lítur listinn svona út:
1. | Princeton |
2-3. | Harvard |
Yale | |
4-8. | Caltech |
Duke | |
MIT | |
Stanford | |
University of Pennsylvania | |
9. | Dartmouth |
10-11. | Columbia |
Northwestern | |
12-13. | University of Chicago |
Washington University | |
14. | Cornell |
15-16. | Johns Hopkins |
Rice | |
17. | Brown |
18-19. | Emory |
Notre Dame | |
20. | UC Berkeley |
Sjálfur hélt ég að Columbia væri hærri. Suma af þessum skólum hefur maður sjaldan heyrt um, eða jafnvel aldrei einsog Dartmouth :confused:
Svo hélt ég að Johns Hopkins væri hluti af Harvard :confused:
Ég veit greinilega ekkert um háskóla í USA! …enda svosem ekkert á leiðinni þangað 🙂
Dartmouth er Ivy League skóli ásamt University of Pennsylvania, Harvard, Princeton, Yale, Cornell, Brown og Columbia
Æskublóm Ágústar er alls ekki fölnað. Litli kúturinn þekkir ekki amríska æví líg.
Svoleiðis… mér datt nú fyrst í hug Harry Potter þegar ég sá þetta 🙂
Heitir sá ekki Hogmouth eða e-ð svoleiðis… man það ekki, sofnaði yfir myndinni :blush:
Talandi um ameríska skóla, þá sá ég þátt fyrir stuttu á BBC um sororities og fraternities (reyndar í Ohio minnir mig) og ég missti andlitið oftar en einu sinni. Ég hélt (vonaði) alltaf að American Pie væri farsi en maður skilur svosem alveg að Bandaríkin séu knúin áfram af innfluttu heilaafli eftir að hafa séð þessar björtustu vonir landsins í hnotskurn :confused: