Við PR fórum í gær á Kertafleytinguna á tjörninni til að minnast fórnarlamba stríða.
Ég tók nokkrar myndir, sem fylgja hér með.
Eitt fór í taugarnar á mér við atburðinn. Það var sú staðreynd að enn einu sinni eru Bandaríkjamenn litaðir sem einu illvirkjar í heiminum. Aðalræða þessar friðaratburðar beindist eingöngu gegn Bandaríkjunum og Davíð Oddsyni.
Er ekki hægt að halda ópólitíska friðarsamkomu?
Það er ekki neitt sérstaklega langsótt að gagnrýna Bandaríkjamenn á athöfn til minningar um fyrsta og eina skiptið sem kjarnorkusprengjum hefur verið beitt í átökum.
Ef núverandi stefna Bandaríkjanna verður ofan á er hætt við að það verði ekki síðasta skiptið:
http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/3126141.stm
KG
Hvernig fór Ameríka að því að breytast á hálfri öld úr því að vera frelsiselskandi, vinsæl, dáð og dýrkuð af restinni af heiminum eftir að hafa “frelsað” Evrópu frá Hitlersógninni og illa keisaraveldinu í austri yfir í að vera tjahh, mér liggur við að segja hötuð af restinni af heiminum?
Þegar vald og auður kemst á hendur fárra einstaklinga fer illa því þeir geta með hvorugt vel farið.
Afhverju setur þú frelsað innan gæsalappa?
Er það eitthvað vafamál?
Hmm, ágæt ábending en það væri ónákvæm alhæfing – sbr. að Ameríka frelsaði t.a.m. Evrópu ekki frá Japan…
Hættu þessari vitleysu. Bandaríkin frelsuðu Evrópu. Sama hversu vondir þér finnst þeir vera í dag, þá skulum við ekki gera lítið úr afrekum þeirra í Evrópu í Seinni Heimsstyrjöld.
Hvernig í ósköpunum geturðu búið í Bandaríkjunum, víst að fyrirlitning þín á landinu er svona augljós?