Þegar þú heyrir [þetta lag](http://www.serrano.is/stuff/Procura.mp3) (Mp3 – 4mb, innlent)
Langar þig til að:
1. Æla
2. Dansa
?
Ég vel númer 2. En ég er líka hálf skrýtinn. Fyrir þá, sem eru forvitinir þá er lagið [Procura](http://www.serrano.is/stuff/Procura.mp3) með Chihi Peralta.
Mig langar eiginlega að gera hvorugt.
Hins vegar kemst maður í smá dansfílíng þegar maður sér coverið á plötunni, en þar er maður að taka einhverja danssveiflu/stökk. 🙂
Definitely dansa. Enda vekur hann Chichi bara upp skemmtilegar minningar :biggrin2: Veit að vinkona mín var með hann á í fæðingunni og læknar og ljósmæður voru farnar að dansa, þannig að hann er bara að gera góða hluti fyrir mann :biggrin:
dansa ekki spurning…. þeir sem að vilja æla kunna greinilega ekki að meta latin tónlist! :tongue:
Dansi dans 🙂
Strákurinn minn (2 ára)fór að dansa. Smekkmaður þar á ferð.
Mig langar eiginlega til að gera bæði, mig langar til að dansa við einhvern sem að kann að dansa við þessa tónlist, en að sama skapi fer þessi rödd alveg í mínar fínustu.
Er einmitt með þennan disk í tölvunni og hlusta oft á fyrstu 20 sekúndur úr lögunum áður en að byrjað er að syngja.
Mig langar hvorugt….langar mest til að hlægja af þessu… :laugh: