Kosturinn við að fara í klippingu á margra mánaða fresti einsog ég geri er sá að ég hef alltaf nóg af lesefni, því ég get farið í gegnum slúðurblöð síðustu vikna. Í Hér & Nú fyrir einhverjum dögum birtist viðtal við íslenska stelpu. Þar segir m.a.
Ok, meikar sense. Hún heillast fyrst og fremst af einlægum og heiðarlegum strákum og segjist sjá í gegnum glamúr heiminn. Hún neitar svo í framhaldinu að tjá sig um einkalíf og strákamál í viðtalinu. Viðtalið endar svo svona:
Allt frekar saklaust. Það er tekið fram að hún hlær í enda setningarinnar, þannig að hún er væntanlega að gantast með það að sportbílar og penthouse íbúðir séu hlutir, sem henni finnst vera mikilvægir í lífinu. Fyrir þetta viðtal fær hún sæta mynd af sér á forsíðunni með þessari fyrirsögn:
**Sportbíll og Penthouse er það sem gleður mig**
Semsagt, blaðamenn H&N láta það líta einsog þetta sé beint kvót í hana, sem er rugl. Þetta er umorðuð setning, sem hún *sagði í gríni*.
Ætli megi ekki ætla að svona 30 sinnum fleiri sjái forsíðu Hér & Nú en lesi blaðið. Það þýðir að yfirgnæfandi meirihluti fólks fær það sama á tilfinninguna og ég fyrst þegar ég sá forsíðuna – það er að Tinna væri að tala um hrifningu sína á strákum, sem ættu sportbíla og penthouse íbúð. Allavegana skildu einhverjir lesendur hjá [Katrínu þetta þannig](http://www.katrin.is/?t=athugasemdir&nid=6404). Það er ólíklegt að almenningur fái mikið álit á henni við að fá þær upplýsingar.
Það má vel vera að hún hafi samþykkt þessa fyrirsögn og að þessi lýsing smellpassi við hana. En af viðtalinu að dæma, þá virkar þetta ansi ósanngjarnt.
Þegar ég vann á Fréttablaðinu voru fyrirsagnir ekki bornar undir viðmælendur eða sourca – og ég leyfi mér að stórefast um að Hér&nú geri sér far um það.
:confused:
Þessi blöð eru svoddan vibbi… gefa ekki skít í neitt eða neinn. Oj bara
Ég man nú eftir einni stelpu sem sagðist í gríni vera alger hnakkamella. Það kom heldur illa út fyrir hana. Svo það eru ekki bara slúðurblöðin sem velja fyrirsagnir eftir hentugleika.
vá þessi sluðurblöð eru svo léleg þetta minnir mig bara á paparazzi myndina og eftir hana hataði ég svokallaða paparazzi fólk!!!
eftir að ég sá paparazzi myndina þá hataði ég paparazzi myndina!
BMW X5 er jeppi frá BMW. En er á ENGANN hátt sportbíll.
Alveg magnað að heiladauðir blaðamenn kynni sér ekki svona hluti!
ogghhh ég er búnað fá 166 hits frá þér í dag.. kids af b2 aftur komnir inn;)
MÉR FYNNST ÞESSI SIÐA HJÁ ÞÉR ANSI GÓÐ ÞÚ 10+ FYRIR ÞESSA SNILDAR SIÐU OG HALLTU ÁFRAM Á ÞESSARI BRAUT
X5 jeppinn er nú alveg vel sportlegur.
Katrín, ekkert að þakka! 🙂
Finni Litli.
Þó svo að þú segir að hann sé sportlegur, myndiru flokka hann sem sportbíl?
Og nei, hann er nú ekkert rosalega sportlegur. Hann er bara með smooth línur og röff útlit.
já svo stendur í Séð og Heyrt að Bríet Sunna sé með arfgengar sjúkdóm og sé að missa heyrnina :laugh: það er engin í ættinni með þennan sjúkdóm og ekkert að eyrunum í henni og hún talaði aldrei við þá og öll þessi opna var bara uppspuni :confused:
Enda held eg nu ad allir vissu ad Her og Nu er og hefur verid einstakt Sorbtimarit sidan that kom ut fyrst . ekki timans virdi ad lesa that
jú Sunna talaði við þá.. hún er heyrnaskert á öðru eyra en ekki heyrnalaus! :confused: þau spurðu hana hvort að þetta væri arfgengt, og hún sagði nei, :tongue: djös rugl er það… þeir bulluðu bara geðveikt mikið en hún talaði samt við þau,
–out 😉