Á morgun er ég að fara á tónleika með Chris Cornell, sem var söngvari í einni af mínum uppáhaldssveitum, Soundgarden. Mér þykir það hálf sorglegt að sólahring fyrir þá merku tónleika er ég með lag á heilanum, sem er sungið af barnakór.
Ég held að þetta sé officially mest catchy lag ársins. Og ekki er platan verri.
Stick to the B.E.A.T!
Búinn að byrja hvern dag í sumar á þessu lagi…
Ok, get vel ímyndað mér að það sé góð hugmynd. 🙂
Þetta lag er syndsamlega gott. Fátt betra en að skella því á og hækka vel í!
D.A.N.C.E. er tvímælalaust eitt af lögum ársins og myndbandið er stórkostlegt.