Ég er Einar Örn Einarsson og bý ásamt eiginkonu minni, Margréti Rós og þremur börnum í Laugardalnum.
Ég vinn sem framkvæmdastjóri Zócalo staðanna, en þeir eru sirka 20 talsins í Svíþjóð og Danmörku. Ég byrjaði að blogga á þessari síðu árið 2000 – og hef haldið þetta út með löngum hléum þennan tíma.
Ég blogga hérna um pólitík, ferðalög og í raun allt annað sem mér dettur í hug. Ég held utan um ferðalögin mín hér en ég skrifað hingað inn nokkuð ítarlegar ferðasögur. Einhverjir hafa haft gaman af þeim og það hefur haldið manni við efnið. Ég er útskrifaður með BA próf í hagfræði frá Northwestern háskóla í Chicago.