Einsog allir vita þá er Stefán Pálsson frægasti og besti bloggari landsins. Það ógnar honum enginn.
Ég ætla hins vegar að hefja mitt eigið persónulegt átak. Nei, ég ætla ekki í megrun, heldur ætla ég að verða frægasti Einar í heimi. Einhver spyr kannski, hvernig það sé mælt hver sé frægastur. Nú, auðvitað er sá, sem er númer 1 á Google leitarvélinni, sá frægasti. Núna er ég númer 11 þegar leitað er að “Einar” á Google. Það er náttúrulega hrikalegt. Eini almennilegi Einar-inn fyrir ofan mig er Einar Diaz, sem er catcher hjá Cleveland Indians hafnaboltaliðinu. Hann er samt bara númer 4 á Google. Efstur er einhver norskur Einar og er það náttúrulega óþolandi.
Ég mun því á næstunni beita öllum brögðum til að komast ofar á listann. Einnig er náttúrulega hneyksli að ég skuli vera Einar númer 41 á leit.is. Því mun ég einnig breyta.
Helvítis norðmenn!
Ég vil leggja mitt af mörkum.
1) Byrjaðu á því að breyta “title” á síðunni í Einar – vefleiðari
2) Skoraðu á lesendur að búa til linkinn einar sem vísar á síðuna þína (google bombing) og hvetja alla til að setja svoleiðis linka á síðurnar sínar og smella á fullu.
3) Rokk og ról
kv.
bió
Jamm, ég get líka kommentað á síðum hjá öðrum bloggerum undir mínu nafni og svo smellt á linkinn, sem komment kerfi síðanna búa til, yfir á síðuna mína.