Þótt ótrúlegt megi virðast þá er þessi bloggsíða mín nú þriggja ára gömul. Fyrsta færslan var skrifuð 22. apríl 2000. Þá var ég á öðru ári í hagfræði útí Chicago og mig langaði að prófa að skrifa vefleiðara einsog Björgvin Ingi og Geir Freyr höfðu verið að gera í nokkrar vikur.
Ég hafði haldið úti fremur dapri heimasíðu í nokkurn tíma en mér fannst hún ekki ýkja áhugaverð, þar sem hún var nánast aldrei uppfærð. Því fannst mér vefleiðaraskrif vera sniðug hugmynd.
Ég hef allavegana enst í 3 ár og eftir mig liggja einhverjar 800 færslur, allt frá stuttum færslum um bíóferðir og djamm í upphafi til lengri pistla um pólitík núna uppá síðkastið. Síðan hefur í gegnum tíðina breyst úr því að vera dagbók á meðan ég var erlendis í námi, til þess að fjalla meira um pólitík og íþróttir og minna um mitt einkalíf.
Ég ætla nú ekkert að monta mig en það eru nú ekki margir á Íslandi, sem hafa enst jafn lengi og ég án þess að stoppa. Oft hafa uppfærslurnar dottið niður en alltaf hefur eitthvað komið til, sem hefur endurnýjað áhuga minn á þessari síðu. Ég vonast til þess að mér takist að halda uppi áhuga mínum og lesenda áfram.
Til hamingju með þennan árangur. Það er rétt hjá þér, það hafa ekki margir nent að gera þetta í 3 ár 🙂
Eru ekki Einar Örn og Gummi Jóh kristaltærir aldursforsetar þegar kemur að samfelldum skrifum?
já, tíminn líður.. til hamingju með áfangann!
ég fagnaði 3. ára afmælinum mínu í bloggheiminum einmitt líka um daginn. við erum engin unglömb lengur.
🙂
Geir: Án þess að vilja fara út í einhverja typpamælingakeppni, þá hef ég bloggað – án þess að hætta – síðan 4. maí 2000 😉
Nokkuð fyndið að lesa færslu nr. 2. Elian who? Einhvern veginn finnst manni mörg mörg ár síðan Elian málið kom upp. Svona er tíminn fljótur að líða 🙂
Hvernig get ég gleymt “Floggermann”! 😉 Hvenær byrjaði Gummi? Hvenær byrjaði Bjarni bre? Út með typpin takk! :biggrin: