Ég var að horfa á Kastljós áðan og þá áttaði ég mig á merkilegum hlut: Ég trúi því ekki enn að *Halldór Ásgrímsson* sé orðinn forsætisráðherra. Þetta er of magnað til að vera satt.
Ok, nú er ég 27 ára gamall. Síðan ég fæddist hafa [forsætisráðherrar](http://www.terra.es/personal2/monolith/iceland.htm) Íslands komið úr eftirfarandi flokkum:
Sjálfstæðisflokkurinn: 18 ár
Framsóknarflokkur: 8 ár
Alþýðuflokkur: 4 mánuðir
Er þetta fokking eðlilegt???
Í alvöru talað? Alþýðuflokksmaðurinn var forsætisráðherra þegar ég var tveggja ára!!! Síðan ég varð þriggja ára hafa Íhaldið og Framsókn ráðið öllu á Íslandi.
Sú staðreynd að Halldór er orðinn forsætisráðherra þýðir líka að í þeim löndum, sem mér þykir mest vænt um eru helstu ráðamenn þessir:
Ísland: Halldór Ásgrímsson
Bandaríkin: George W. Bush
Venezuela: Hugo Chavez
Kræst! Þetta er ekki hægt.
Ég er ekkert viss um að Halldór sé búinn að gera sér grein fyrir því sjálfur að hann gegni þessu háa embætti, hann er flóttalegur og hvumsa á svipinn, eins og hann bíði eftir að þetta verði tekið af honum aftur.
Skemmtileg statistík 🙂
Hæ hæ, mjög skemmtileg síða hjá þér og ég er oft fullt sammála þér. Mér finnst að Alþýðuflokkurinn ætti að rísa upp frá dauðum og taka völdin 🙂
Takk, Maja.
DonPedro, mér finnst þetta ekkert sérstaklega skemmtileg tölfræði 🙂
Varðandi 27 árin er þetta jafnvel bara býsna gott hlutfall. Ef það yrði farið lengra aftur í tímann kæmi í ljós að það eru eiginlega engin dæmi þess að aðrir flokkar eigi forsætisráðherrann. Alþýðuflokkurinn á líklega samtals 3-4 ár, og mestu munar um Stefán Jóhann Stefánsson sem var krati og forsætisráðherra 47-49.