Það er alltaf gaman þegar að tónleikar opna fyrir manni nýja sýn á lög. Það gerðist á Chris Cornell tónleikunum með lagið Like a Stone, sem ég hef aldrei verið sérstaklega hrifinn af. En á tónleikunum var það frábært í órafmagnaðri útgáfu, svipaðri og sést hér.
3 thoughts on “Like a Stone”
Comments are closed.
Hvernig er það, tók hann allar háu og erfiðu nóturnar á tónleikunum? Heyrði að hann væri eitthvað farinn að hætta að þora því á tónleikum.
Mér fannst hann ekki alveg ná þeim í byrjun, en svo þegar leið á var þetta allt að koma hjá honum. Hann var bara svo drullu flottur að maður var ekki að kippa sér upp við einhverja nokkra tóna!
Úlli, það kom mér einmitt á óvart hversu hann hlífði sér lítið á þessum tónleikum. Mér fannst hann fara í allar hæstu nóturnar. Þrátt fyrir að session-istarnir hafi verið full miklir pepperar, þá var Cornell ótrúlega góður. Það getur verið að hann hafi sleppt einhverjum nótum, en ég tók lítið eftir því.