Alveg ljómandi helgi næstum því búin.
Á föstudagskvöld var ég með partí hérna heima hjá mér, sem var helvíti hresst. Spiluðum Actionary og Wii Tennis/Box, drukkum jólaglögg, bjór og vodka og eitthvað fleira.
Fórum svo nokkur saman í bæinn. Fyrst á The English Pub, sem er nýr staður þar sem Deco var áður, svo í 12 sekúndur á Organ og þaðan fór ég einn uppá Vegamót þar sem ég hitti vin minn. Enduðum svo á einhverju alsherjarflakki milli skemmtistaða á og við Laugarveginn.
Í gær var ég svo algjörlega fáránlega þunnur. Hef ekki upplifað slíkt í mörg ár, enda hafði ég svo sem ekki drukkið í nokkuð margar vikur. Náði m.a.s. að æla, sem hefur ekki gerst ansi lengi. Rétt hafði orku í að horfa á smá hluta úr tveimur fótboltaleikjum.
Náði þó að mæta í árlegt thanksgiving matarboð um kvöldið, sem að matarklúbbarnir úr Verzló vinahópnum mínum halda árlega. Það hefur verið hefð fyrir því að ég mæti þunnur á þennan viðburð enda hef ég frá stofnun klúbbanna verið eini einstaklingurinn á lausu (semsagt ég og 8 pör) í boðinu.
Maturinn var auðvitað æðislegur, enda er kalkúnn og meðlæti í gríðarlegu uppáhaldi hjá mér. Svo var setið og spjallað um pólitík, fótbolta og önnur skemmtilegheit fram eftir kvöldi. Í dag horfði ég svo með vini mínum á [Liverpool vinna Bolton auðveldlega](http://www.kop.is/2007/12/02/16.52.25/#comment-23457) sem enn bætti skapið mitt.