99 vinir

Jæja, allt að gerast í þessum MySpace heimi. Ég er núna kominn með [99 vini á MySpace](http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=77574207). Spennan er því nánast óbærileg fyrir því hver verður 100. vinur minn!

Hingað til hafa þrír þýskir DJ-ar beðið um að vera vinur númer 100, en ég hef hafnað þeim án þess að blikka augunum. Er enn að gæla við þá hugmynd að einhver dökkhærð þokkadís spretti inní líf mitt með vinaboði og breyti lífi mínu algjörlega.

Ef ekki, þá verð ég sennilega bara að sætta mig við [DJ Bobo](http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=168445743).

13 thoughts on “99 vinir”

  1. Ég er dökkhærð þokkadís sem myndi pottþétt berjast við þýsku DJ-ana um að verða hundraðasti vinur þinn ef ég bara væri með MySpace. Ohh, ég vissi að ég væri að missa af miklu þegar ég hætti við að fá mér svoleiðis.

  2. Mér þætti heiður að vera kallaður 100 vinur þinn en við höfum verið vinir það lengi að það þætti frekar óþarfi

    Bestu kv.
    Genni

  3. Hef einhvern veginn aldrei náð þessu myspace. Mogga bloggið er lífið :biggrin2:

  4. Genni, enda ertu ekki þokkadís – sama hversu langt maður reynir að teygja það hugtak. 🙂

    Og MySpace er talsvert skemmtilegra en Moggabloggið. Minna tuð og meira af sætum stelpum. Tómas og Bella eru að missa af miklu.

    Og dökka hárið er kostur, en kannski ekki skilyrði. Já, og GummiJóh – ég er viss um að DJ Bobo vill vera vinur þinn. Hann myndi ábyggilega tárast ef þú bæðir hann fallega. :biggrin2:

  5. Sama hvað væri mikið af dökkhærðum þokkadísum á mæspeis, ég gæti ekki verið þarna inni.
    Það byrjar að blæða úr augunum á mér 5 sekúndum eftir að ég sé síðu þarna.
    Geocities síður voru hreint augnakonfekt í samanburði!

  6. Það er náttúrulega gríðarlega mismunandi. Ég er allavegana á því að síðan mín valdi ekki neinum sérstökum augna-blæðingum. 🙂

  7. Nei, fyrirgefðu, var ekki búinn að líta á hana. Hún er eins fín og hægt er. Annað en bóbó greyið

    Er reyndar alls ekki að fíla hvernig þetta er sett upp, en það er líklega bara aldurinn sem háir. En allavega skilst aðeins betur hvernig þetta virkar á almennilega útlítandi upp síðum eins og þínum.

    Þanúþa.

  8. Jamm, ég veit að flestallt er hræðilegt á að líta. Og það er gríðarlega erfitt að gera þetta sæmilega vel útlítandi. Ég kóperaði þetta lúk frá einhverjum öðrum.

  9. tiss svo ég vitni nú í visku myspace: blondes rule!!!! brunettes drool.. : 🙂
    annars er bobo dökkhærður sem og myspace vinkona okkar sem ég sýndi þér um daginn…þú ættir að tékka á henni :biggrin2:

Comments are closed.