Hótelherbergi í Varsjá

Ég veit ekki hvað það nákvæmlega er, en ég elska að gista á góðum hótelum! Sumir kvarta endalaust yfir því að þurfa að dvelja á hótelum, en mér finnst það alveg yndislegt. Sumir geta ekki sofið í hótelrúmum, en ég sef aldrei eins yndislega vært og í góðum hótelrúmum.

Kannski er það vegna þess að frá fyrri ferðalögum mínum er ég vanur að dvelja á alveg einstaklega viðbjóðslegum hótelherbergjum. Allt frá því að gista í fyrrum fangelsi í Perú til kakkalakkabæla í Venezuela og því að lenda í mýfluguárás í St. Pétursborg. Kannski að allt þetta fái mig til að meta góð hótel svo mikils og njóta verunnar á þeim.

Ég elska sápur í litlum pökkum. Ég elska að það sé tekið til eftir mig og ég elska að geta sett skyrturnar mínar í poka og fengið þær svo nokkrum tímum hreinar og straujaðar. Það er einhver sérstök tilfinning við að vera á hótelum.

Ég er semsagt núna á Marriott hótelinu í Varsjá. Nánar tiltekið á 21. hæð með stórkostlegt útsýni yfir Varsjá og “[Palace of Culture](http://travel.yahoo.com/p-travelguide-2788553-palace_of_culture_warsaw-i)”. Þrátt fyrir að Pólverjum þyki sú bygging hræðileg (sennilega vegna tengingarinnar við Sovétríkin) þá þykir mér hún æðisleg. Kannski hef ég svona skrítinn smekk, en mér þykja þó líka [systurnar hans Stalíns í Moskvu](http://www.architecture.about.com/library/weekly/aa090501k.htm) vera ótrúlega sjarmerandi byggingar.


Stundum getur lífið verið ótrúlega skrítið og fullt af einkennilegum tilviljunum, sem beina manni á ákveðna staði á ákveðnum tímum. Aldrei hefði mér til dæmis dottið í hug að ég myndi eyða miðvikudagskvöldi á pólskum sportbar, styðjandi Manchester United. En þetta gerðist í gær.

Ég kom hingað til Varsjár með flugi frá Svíþjóð (eftir að hafa látið mér leiðast á flugvellinum í Stokkhólmi í *7 klukkutíma*). Þegar ég kom uppá hótelherbergi sá ég að það var sportbar á neðstu hæðinni, sem var að sýna frá enska boltanum. Þannig að ég hljóp auðvitað niður og fékk mér bjór yfir boltanum. Ég treysti á sigur Manchester United, þar sem það hefði komið vonum Liverpool um Evrópufótbolta vel. En auðvitað, loksins þegar ég hélt með viðbjóðinum í Man U, þá töpuðu þeir. Alveg gjörsamlega típískt og óhætt að segja að óbeit mín á því liði hafi ekki farið minnkandi við þetta.


Er búinn að sinna vinnunni í mest allan dag. Fyrst útí bæ og svo hérna heima á hótelherbergi, þar sem ég er með net aðgang. Held að ég sé kominn nógu langt svo ég megi eiga von á því að geta aðeins túristast á morgun.

*Skrifað í Varsjá, Póllandi klukkan 22:15*

One thought on “Hótelherbergi í Varsjá”

  1. Hótel eru æði! Sérstaklega þegar maður er búinn að vera að bakpokast í einhverja mánuði, gistandi á sjabbí stöðum og fær svo tækifæri til að vera á 5 stjörnu hóteli (og náttla enn betra ef það er frítt :þ)!!

    Hef lent í því – algjör draumur að komast í almennilega sturtu, hrein handklæði og mjúkt rúm… hahaha og sjónvarp! Meiri lúxusinn!

Comments are closed.