Kim-Jong Tiger

Þetta [brjálæðislega komment](https://www.eoe.is/gamalt/2003/02/09/23.23.45/#2813) minnti mig á atriði, sem ég ætlaði að fjalla um fyrir löngu. Það er gríðarlegir golfhæfileikar Kim Jong Il, leiðtoga Norður-Kóreu.

Málið er að einsog [NY Times](http://www.nytimes.com/2004/07/04/weekinreview/04mcgr.html?ex=1089518400&en=526ef68a6e62c56b&ei=5062&partner=GOOGLE) fjalla um í þessari grein, þá er Kim-Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, ekki einungis mikill friðarsinni og mannvinur, heldur einnig BESTI golfspilari í heimi.

Kim-Jong Il hóf að spila golf árið 1994. Hann byrjaði vel (samkvæmt Norður-Kóreskum fréttastofum), því á fyrstu holunni sinni, þá fór hann holu í höggi. Ekki nóg með það, heldur á fyrsta hringnum fór hann holu í höggi alls fimm sinnum af 18 holum. Í lok dags hafði hann spilað þessar 18 holur á 39 höggum, sem er einmitt 38 undir pari vallarins.

Besta skorið á PGA túrnum er 59 högg, eða 20 fleiri högg en Kim-Jong Il fór á í sitt fyrsta skipti. Þannig að það er ljóst að leiðtogi Norður-Kóreu er mikið undrabarn á golfvellinum.

3 thoughts on “Kim-Jong Tiger”

  1. Phew, eins gott að hann fari ekki að skella sér á mótaröðina, það myndi alveg skemma spennuna! Ætli Tiger sé kannski að múta honum að halda sér frá golfvellinum?

  2. Helvíti flott heimasíða hjá þér drengur. Koma svoooo fjanden.

  3. Æi, þetta er nú bara svona la la síða, hef séð þær mikið betri.

Comments are closed.