Vinnupartý og útilegur

Mér finnst vanalega alveg óstjórnlega leiðinlegt að keyra. Ég keyri fram og aftur úr vinnu nánast í einhverju móki, alveg hugsanalaust. Gleymi mér oft þegar ég ætla að fara uppá Serrano á leiðinni heim og er kominn hálfa leið í Vesturbæinn þegar ég átta mig á hlutunum. Er svo vanur að fara sömu leið alveg án þess að hugsa, að öll tilbreyting veldur nánast uppnámi.

En einstaka sinnum er gaman að keyra. Einsog t.d. í kvöld. Var að keyra frá Hellu og í bæinn. Einn í bíl, með iPod-inn minn í eyrunum í æðislegu veðri með sólina í andlitið. Fannst einhvern veginn allt svo fallegt í kringum mig. Sami vegur og ég hef keyrt svo oft áður, en stundum er einfaldlega gaman að vera í bíl á 100 90 kílómetra hraða.


Þetta er búin að vera góð helgi. Ég var með starfsmannapartý hérna á fimmtudagskvöld og það var frábært, einsog vanalega. Ég veit að auðvitað er maður að halda starfsmannapartý *fyrir* starfsfólkið, en ég hef bara svo ótrúlega gaman af þeim líka. Maður lærir líka svo margt. Flestar stelpurnar eru of feimnar til að segja manni merkilega hluti í vinnunni, en í partýjunum þá losna þær við feimnina.

Ég fór svo í bæinn. Labbaði með tveim stelpum á meðan að flestar fóru á bílum. Fór með þeim á Gauk á Stöng. Þar sem ég er *orðinn tvítugur* var ég ekki alveg að fíla mig þarna inni. Spilaði púl við eina stelpuna, en svo ákváðum við að fara á aðra staði. Fórum og borðuðum á Purple Onion, löbbuðum svo uppá Café Oliver þar sem við vorum til lokunnar. Enduðum svo á Hverfisbarnum.

Á leiðinni heim um klukkan hálf sjö var komin glampandi sól og yndislegt veður í bænum. Þegar ég labbaði framhjá tjörninni hitti ég nokkra Ástrala, sem voru þar samankomnir og voru að reyna að sannfæra hvort annan um að fá sér sundsprett í tjörninni. Eftir smá umræður ákváðu þeir allir að stökkva í ískalda tjörnina. Eftir smá umhugsun ákvað ég að fylgja ekki á eftir.


Í dag fór ég svo í útilegu með hinni vinnunni minni. Þetta var fjölskyldu útilega, svo ég ákvað að gista ekki, en fór þess í stað í morgun og er búinn að vera þarna í allan dag. Var að koma heim áðan og er einsog karfi í framan. Veðrið var æði og ég borðaði yfir mig af grillmat. Maður getur ekki beðið um meira.

Í kvöld ætla ég svo að taka því rólega, klára að lesa Angels & Demons og njóta þess að sofa út á morgun. Vonandi verður morgundagurinn góður.

8 thoughts on “Vinnupartý og útilegur”

  1. Við hljótum að hafa mæst á Selfossi! Ef þú fjallar um keyrsluna á jákvæðan hátt gerði ég það eflaust á neikvæðan hátt…

    …en svona er lífið bara. 🙂

    Það er samt stórkostlega fagurt að keyra Suðurlandið í svona góðu veðri eins og í gær.

  2. Jammm, samt verður Suðurlandið ekki sem magnaðast nema maður keyri framhjá Hellu, þar sem ég var um helgina. En jú, þetta er einn fallegasti vegakafli, sem ég hef keyrt á í heiminum.

  3. Hvernig finnst þér A&D? Heyri misjafna dóma og því hefur hún fengið að bíða á náttborðinu.

  4. Jamm, þetta er ágætis bók. Frekar svipuð að uppbyggingu og Da Vinci Code, þannig að ef þér fannst hún góð, þá er þessi líka góð.

  5. Varist bara hinar tvær, sem ég gerði þau mistök að kaupa á flugvelli. Þær eru rusl. Ekki einu sinni B-myndir á Sýn.

  6. Takk. Ég læt þá reyna á hana, fólk hefur augljóslega misjafnan smekk á bókum eins og öðru. 🙂

  7. Verum þá sammála um að vera ósammála. Það er að mínu mati ekki snitti í þeirri bók sem ekki er fyrirsjáanlegt og ég hafði ekki mikla samúð með karakterunum. En, eins og Einar bendir á, þá er ekki til rétt eða rangt í þessu 🙂

Comments are closed.