12 kíló af hassi

Það er margt í þessum heimi, sem ég skil ekki.

Til dæmis það af hverju að [Íslendingur reynir að fljúga frá Amsterdam til Sao Paolo í Brasilíu](http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1219462) með 12 kíló af hassi í farangrinum! Af hverju reyna menn að smygla hassi með flugi? Og það til Brasilíu, sem á landamæri að Bólivíu, Kólumbíu, Venezuela, Perú og fleiri löndum þar sem framboð á þessu efni er ansi gott. Þetta er ótrúlega magnað.

3 thoughts on “12 kíló af hassi”

  1. Kannski var hann að fara í langt frí og var ekki sáttur við gæðin í síðustu ferð :biggrin:

    Eða jafnvel tók vitlausa flugvél? Ætlaði að fara í norður en endaði í suðri…

  2. Í ljósi nýjustu frétta held ég að ég haldi mig við upprunalegu kenninguna um að hann hafi ekki verið sáttur við gæðin í síðustu ferð, held það sé ekkert annað sem gæti mögulega útskýrt þetta.

    mbl.is-frétt

    Hvenær kemur svo nýja ferðaáætlunin á netið?
    :rolleyes:

Comments are closed.