Vá, ég hélt að það hefði einhverju hámarki verið náð með þessum Who wants to be a Playboy Playmate þætti, sem var sýndur á Skjá Einum fyrir einhverjum vikum.
Ég rakst hins vegar á þennan þátt: Extreme Makeover, sem er sýndur á ABC í Bandaríkjunum. Hann byggist á því að þáttakendur eru sendir í fjölda lýtaaðgerða til að bæta útlit sitt. Hrein snilld!!!
Hér má sjá fullt af “Fyrir og Eftir myndum” Þar var meðal annars þessi John, sem fór í andlitslyftingu, augnlyftingu, lét sprauta fitu í kinnarnar og fékk hvítari tennur. Vá, hvað ég þarf að sjá þennan þátt! 🙂
iss þú kannt bara ekki gott að meta! 🙂
Já, siðmenningin er sannarlega hvergi meiri en í landi frelsisins.
Einar – Slóðin á þetta komment er sem hér segir:
http://www.danol.is/mt/mt-comments.pl?entry_id=4407
Sá allt í einu faviconana breytast úr e í d …