Einhvern tímann fyrir nokkrum árum bloggaði ég um myndband þar sem strákur dansaði á þekktum stöðum alls staðar í heiminum.
Jæja, hann er búinn að gera annað myndband, sem er alveg jafnmikil snilld og það fyrra. Hann byrjar það á einum af mínum uppáhaldsstöðum í heiminum, Saltvötnunum í Uyuni í Bólivíu.
Allavegana, ég kemst í gott skap við að horfa á þetta
🙂 sá þetta fyrir soldlu síðan… var alveg á leiðinni að segja þér frá því …svona þar sem maður sá fyrsta vídjóið hjá þér! 🙂
anyways, mér finnst frekar kúl að einhver tyggjóframleiðandi hafi kostað alla ferðina hans til að geta haldið áfram að taka upp dansvídjó! …”the power of the internet” er greinilega að virka! 🙂
Þetta. Er. Æði.
Og já, þetta með kostunina á seinni myndinni frábært.
vá þetta bjargaði alveg morgninum hjá mér.. ekkert smá flott!!!
Oddný
Það gleður líka hjartað að sjá hann dansa á Zero7 tónleikum. Hress maður!
http://wherethehellismatt.typepad.com/blog/2006/09/seattle_washing.html
Já, já, þetta er sniðugt og það er gaman að horfa á það …en að þú látir þér detta í hug að kalla þetta ”dans”video finnst mér alveg gjörsamlega absúrd!!! Ég myndi mjög gjarnan láta sponsa mig í ferð um allan heim OG ég gæti dansað!!!