Damien Rice

Ég og [PR](http://www.grodur.is/jens/) fórum á Damien Rice á Nasa síðasta föstudag. [Gummijóh](http://www.gummijoh.net/archives/007030.php#007030) og hagfræðingurinn, sem má ekki linka á, hafa fjallað ágætlega um tónleikana.

Ég verð að viðurkenna að þetta var svo miklu miklu betra en ég átti von á. Vissulega er “O” fínn diskur með sæmilega grípandi lögum, en ég bjóst ekki við neinni flugeldasýningu.

Þess vegna var svo ótrúlega gaman að upplifa þessa mögnuðu tónleika. Rice setti gríðarlegan kraft í lögin með því meðal annars að nota hljóðeffekta á frábæran hátt. Það var bara eitthvað við framkomuna, sönginn og kraftinn sem var alveg magnað. Það er auðvitað hneyksli að líkja “O” við “Grace” með Buckley en hins vegar hefur maður á tilfinningunni að Rice geti átt eitthvað í Buckley með árunum.

Eina sem skemmdi fyrir þessu voru glamgellurnar á barnum, sem voru símalandi og pantandi kokteila. Lögin eru sum hver það róleg að það þurfti algjöra þögn á staðnum.

En það skemmdi þó ekki fyrir þessum tónleikum. Sannarlega með bestu tónleikum, sem ég hef farið á. Damien Rice er sko rétt að byrja.

2 thoughts on “Damien Rice”

  1. Hjartanlega sammála. Ótrúlega tillitslaust af fólki að geta ekki haldið kjafti yfir lögunum sem kröfðust þagnar. Held að á eftir Nick Cave séu þetta bara langbestu tónleikar sem ég man eftir, hann leynir alveg ótrúlega á sér þessi strákur, fór langt fram úr öllum mínum væntingum. Mæli annars með því að þú hlustir á Gumma Jóh tala spænsku við tækifæri, það er prýðisskemmtun.

Comments are closed.