Enjoy the Silence

Þetta er flottasta auglýsing, sem ég hef séð á þessu ári:

Sá þetta á undan Juno í bíó í Stokkhólmi á fimmtudaginn. Aðalástæðan er auðvitað notkunin á laginu Enjoy the Silence með Depeche Mode, sem er eitt af mínum uppáhaldslögum. Þessi auglýsing gerði það einmitt að verkum að ég hef hlustað á [þetta æðislega lag](http://youtube.com/watch?v=X0Hez25fFrg) nánast stanslaust síðan ég kom heim frá Stokkhólmi.

Jæja, ég ætla að reyna að gera mig sætan og kíkja svo út. Ómögulegt að hanga inni á laugardagskvöldi.

2 thoughts on “Enjoy the Silence”

  1. Ef þú ættir heima í Danmörku þá værir þú farinn að hata þessa auglýsingu því það er búið að sýna hana stanslaust í að mér finnst 2 ár, þó það sé sennilega nær 2 vikum í raunveruleikanum.

Comments are closed.