Fyllerí í sjónvarpi, helgin, GTA, Dark Knight og fleira

Fyrir langa löngu var ég að reyna að finna þetta myndbrot með Steve Carrell og Stephen Colbert þegar þessir tveir snillingar voru aðalgrínararnir í The Daily Show. Í þá daga horfði ég á þáttinn á nánast hverju einasta kvöldi þegar ég var í námi útí Bandaríkjunum. Þetta brot rifjaðist upp fyrir mér í samræðum sem ég átti við vin minn yfir hádegismatnum í dag (vorum að prófa Nítjándu í Turninum, sem var fínt).

Allavegana, í þessu myndbroti – Drink Responsibly – dettur Steve Carrell í það fyrir framan myndavélarnar. Þetta er um fimm mínútur, en þið verðið hreinlega að horfa á þetta. Já, og ef einhver horfði ekki á myndbandið sem ég linkaði á á laugardaginn, gerið það þá NÚNA!

* * *

Annars var helgin frábær. Ég fór í afmæli hjá stelpu sem ég þekkti ekki neitt á Domo á föstudaginn, en þar var fullt af ótrúlega skemmtilegu fólki sem ég þekki. Fór með vinum mínum útað borða á indverska daga á Ólíver á undan, sem var mjög fínt. Afmælið var ótrúlega skemmtilegt og einn vinur minn stóð meðal annars fyrir einu allra fyndnasta atviki sem ég hef séð á íslenskum skemmtistað og mun sennilega ylja mér um hjartarætur hvenær sem mér leiðist í framtíðinni. Fórum svo á Ölstofuna, þar sem að fjörið hélt áfam.

Á laugardaginn fór ég svo í UJ útilegu, sem var haldin nálægt Reykholti. Útilegan var reyndar færð inn sökum veðurs, en ég tjaldaði þrátt fyrir það rétt hjá húsinu. Þar var mjöög gaman.

* * *

Ég er búinn að vera hálf þreyttur í allan dag og svaf m.a.s. fyrir kvöldmat, sem gerist nánast aldrei. Mætti jú í ræktina í morgun í fyrsta skipti í viku, sem var yndislegt, en var samt hálf þreyttur allan daginn. Komst að því að Café Americano kostar 350 krónur á Kaffitár, en venjulegur kaffi kostar bara 280 krónur með frírri áfyllingu. Ég verð að játa að ég skil ekki þá verðlagningu. En þar sem það ágæta kaffihús er nánast einsog skrifstofa mín, þá held ég kvörtunum í lágmarki.

* * *

Áhorf mitt á Ísland í Dag er komið niður í sirka 15 sekúndur á dag. Það er akkúrat tíminn sem að Vala Matt þarf til að kynna það sem verður í þættinum.

* * *

Ég er búinn að spila Grand Theft Auto IV öðru hvoru undanfarna daga. Samkvæmt tölfræðinni þá er ég búinn með 15,2% af leiknum. Ég hef í raun ekki dottið inní tölvuleik síðan ég spilaði (og dýrkaði) BioShock í jólafríinu.

* * *

Og að lokum þá skrifar Kristján Atli upphitun fyrir The Dark Knight. Ég held að ég hafi sagt það í kommentum á þessari síðu að ég man hreinlega ekki eftir því hvenær ég var jafn spenntur fyrir bíómynd og þessari.

15 thoughts on “Fyllerí í sjónvarpi, helgin, GTA, Dark Knight og fleira”

  1. Ég fór líka á nokkra staði um helgina og lenti í hreint alveg ótrúlegu atviki. Síðan gerðist eitt annað í viðbót sem var alveg ótrúlega skemmtilegt sem myndi vera ótrúlega gaman að segja frá…

  2. I’m only a phone call away…

    Það er misskilningur ef fólk heldur að þessi síða sé góður staður til að fá sögur af öllu því skemmtilegasta sem ég lendi í. Til þess að fá þær þurfa vinir mínir actually að tala við mig. 🙂

  3. Hey, þú breyttir! Þú svindlar á Internetinu, þú svindlar!!!

    Ég var að reyna að benda á að það er ekkert voðalega gaman að lesa sögu sem gefur bara eitthvað í skyn en segir lesandanum ekkert …og þá er ég náttúrlega að hugsa um hinn lesanda síðunnar sem þekkir þig ekki nægjanlega vel til að taka upp tólið …nei ég meina …sko …símann!

  4. Þær sögur sem ég gef í skyn eru fylleríssögur af vinum mínum, sem ég er nú ekki beint æstur í að skrifa á þessa síðu.

    Annars var þetta kannski full lítið af efni í þessari færslu. Þeir sem geta ekki fengið sögurnar frá mér verða þá bara að njóta Steve Carrell myndbansins. 🙂

    Umrætt atvik tengist ekki tómat.

    Helvíti ertu samt góður í að vakta síðuna víst þú tókst eftir breytingunni.

  5. Jensi – þetta atvik var engu að síður mjög fyndið. Þú hefðir verið mjög stoltur af þessum gjörning. Eftirleikurinn á laugardaginn var líka nokkuð hress.

  6. …frúin var pirruð yfir heitinu á millifærslunni?

    En ég verð sum sé að boða til símfundar á eftir …ég þarf bara að kommenta aðeins um tómat á nokkrum síðum fyrst!

  7. ómægod. var á the dark knight í fyrradag og hún er svo rugl góð. með svona marga topp leikara/karaktera að þá var ég pínu hrædd um að plottið yrði út um allt, en það var alls ekki. og allir í salnum klöppuðu þegar credit listinn kom án þess að það væri hallærislegt hehe. hlakka til að sjá dómana sem hún fær frá íslandi.

Comments are closed.