Hæ hó jibbí jei

Vúhú, ég er á leiðinni í útilegu!! Og það á stuttbuxum!! Ég er að spá í að pakka bara stuttbuxum og stuttermabol og sólarvörn. Ég er hins vegar ekki fífl og tek því regngalla með mér.

En allavegana veðrið er yndislegt. Vona bara að þetta verði einsog á Uxa fyrir einhverjum árum. Það er eina verslunarmannahelgin, sem ég man eftir í góðu veðri.

One thought on “Hæ hó jibbí jei”

  1. Uxi var snilld. Reyndar vont að vakna við dalalæðu sem bleytti allt sem hægt var að bleyta.

Comments are closed.