Kerlingalegur sjónvarpssmekkur

Líf mitt undanfarna daga hefur nálgast hreina geðveiki alveg ískyggilega mikið. Samt hef ég haft tíma, vanalega eftir miðnætti til að horfa á 2 æðislega og sjónvarpsþætti og einn ömurlegan.

Ágúst kallaði sjónvarpssmekk minn kellingalegan og er ég farinn að hallast að því að það sé rétt hjá honum.

Fyrst verð ég náttúrulega að tala aðeins meira um “Queer eye for the straight Guy”. Ég held í alvöru að Carson sé mesti snillingur allra tíma. Þegar hann var að laga sjónvarpið í síðasta þætti var stórkostlegt móment.

Það skemmtilegasta við þáttinn er hvað öll komment, sérstaklega hjá Carson virka spontant í þættinum. Eflaust er sumt skrifað á undan, en tímasetningin er alveg fullkomin hjá þeim.

Besta og fyndnasta ráðið, sem Carson gaf var að maður ætti að taka Polaroid mynd af sér í lok dags svo maður myndi örugglega ekki fara í sömu föt næstu fjórar vikurnar. Snilld! 🙂


Fyrir nokkrum vikum keypti ég mér alla þætti af Cold Feet á DVD. Þessir þættir eru náttúrulega geðveik sápa, en samt er ég alveg hooked.

Um síðustu helgi var ég eitthvað að tala um það að mér fannst Rachel vera ýkt sæt. Veit ekki hvað það er, en það er eitthvað við hana. Vinur minn sagði að það væri ekkert varið í hana, hún væri einsog Emma Thompson. Kannski er ég bara svona skrítinn.


Ég reyndi að horfa á Joe Millionaire, sem ég var sannfærður um að væri snilldarþáttur. Eeeeeen, þátturinn er ömurlegur. Ekki ein flott gella, engin rifrildi og svo er gaurinn leiðinlegur. Hræðileg vonbrigði!

9 thoughts on “Kerlingalegur sjónvarpssmekkur”

  1. Hey, var að sjá þátt af Joe rétt áðan. Þetta er ekkert spes, en Joe er nú samt krúttlega vitlaus. Þjónninn er líka svolítið dularfullur.

  2. Þú tjáir þig ekki um mestu snilldina…

    1) Office
    2) Spooks

    …bestu rökin fyrir (bresku) ríkissjónvarpi sem ég hef heyrt.

  3. Ég er reyndar ekki mjög hrifinn af Coupling. Horfði á fyrstu seríuna og fannst hún ekkert til að hrópa húrra fyrir.

    Office er hins vegar snilld. Er búinn að kaupa mér seríu 2 á DVD en er bara búinn að tíma að horfa á einn þátt. Hef hvorki heyrt um né séð Spooks.

    Og já, það er einhver sjarmi yfir Helen Baxendale (sem leikur Rachel, fyrir þá sem ekki vita). Veit ekki hvað það er. Hún er allavegana talsvert sætari en Emma Thompson enda er þessi vinur minn klikkaður. 🙂

  4. QEFSG eru snilldar þættir :biggrin2: Þú ert greinilega að missa af bestu þáttunum sem verið er að sýna í dag… Hálandahöfðinginn sem er sýndur á Rúv á sunnudagskvöldum er FRÁBÆR þáttur, tékkaðu á honum 🙂

  5. Ég á einmitt alla Cold Feet þættina líka (reyndar á VHS) nema 3ju seríuna (hef reyndar horft á hana tvisvar á Stöð 2 :blush: ) og held mjög upp á þessa þætti. Algjör snilld. Og Helen Baxendale ER flott og ég hef einmitt líka verið sagður klikkaður að halda því fram.

    Mér finnst samt bjútíið við þessa þætti vera að þrátt fyrir, okey ég skal viðurkenna það, að þetta geti verið mikil sápa á köflum, að þá eru þetta ekki svona leiðinleg gervivandamál sem persónurnar takast á við. Svo eru þetta líka vel skrifaðir gamanþættir. Dettur t.d. bara í hug ræða Petes í brúðkaupinu.

    Ég skil samt ekki af hverju þú ert ekki að fíla Coupling, hefði haldið að þetta væru ekta þættir fyrir þig.

    Og já, þú hefur kerlingarlegan sjónvarpssmekk, m.a.s. kerlingarlegri en ég :tongue:

Comments are closed.