Mestu leiðindi Íslandssögunnar

Ég get ekki ákveðið hvað mér finnst leiðinlegast:

* Fréttir um það hvað bankastarfsmenn eru með í laun
* Mótmæli SUS-ara og bloggskrif gegn því að álagningarskrár séu birtar.
* Hneykslisblogg um það hvað bankastarfsmenn eru með há laun
* Umfjöllun fjölmiðla um umfjöllun annarra um þessar skrár.

Getum við ekki bara hætt að birta þessar álagningaskrár? Þó það væri nú ekki bara nema til þess að hlífa mér fyrir þessum leiðindum?

* * *

Annars er ég á leið til Skotlands á föstudaginn. Ég er orðinn spenntur, þar sem síðustu vikur hafa verið ansi strembnar og fullar af stressi þrátt fyrir að þær hafi vissulega verið afskaplega skemmtilegar. Vandamálið með mig hefur verið það að ég nýti aldrei fríin mín um helgar, heldur held áfram að vinna. Þess vegna þarf ég að fara út til þess að slappa af í nokkra daga.

Ég ætla eyða 3 dögum í Edinborg og 1 degi í Glasgow. Þetta verður fjör.

* * *

Já, og svo mæli ég með [þessum disk](http://www.amazon.co.uk/Desire-Pharoahe-Monch/dp/B000JJRIOI/ref=pd_bbs_sr_1/026-4625146-8920401?ie=UTF8&s=music&qid=1186004077&sr=8-1).  Ég lýsi því yfir að þetta sé besti hip-hop diskur ársins hingað til.  Ég hef fílað Pharoahe Monch síðan að Wyclef Jean spilaði Simon Says á tónleikum í Chicago.  Það var svalt atriði.

5 thoughts on “Mestu leiðindi Íslandssögunnar”

  1. oj já það ætti að lækka launin hjá öllum bankastarfsmönnum og lækka þessa okurvexti í staðinn;)

    en hey taktu eftir í glasgow, öllum stelpunum sem eru feitar og í of litlum fötum.. í alvöru það er like 80% kvenna þarna.. mjög áhugavert

  2. Fyndið. Ég fékk email frá einum strák um þetta Glasgow/Edinborgar dæmi. Þar á meðal var þessi lína:

    Bollurnar með bert á milli gera dvöl í Glasgow illbærilega en í Edinborg er fullt af sætum stelpum

    Ég valdi Edinborg.

  3. Góða skemtun í skotlandi.. og njóttu vel….
    mæli með að þú prófir að fá þér að borða á stað sem heitir The Blue Lagune… fiskmeti og kjúklingar…man ekki eftir að hafa séð hann í edinborg, en hann er í glaskow. og þar er eithvað sem heitir hækers eða eithva sollis sem er þjóðar matur þarna… smakkaðu 🙂 hafðu bara eithvað gott að drekka nálægt..

    Vonandi verður betra veður hjá þer en spáð er hér um versló… kveðja frá eskifirði

  4. ef tu filar hip-hop eins og eg tjekkadu ta a nyja Talib Kweli – Ear Drum. Mer finnst hann klikkadur!

Comments are closed.