Ólafur Teitur og fréttayfirlit

Ólafur Teitur, frjálshyggju- og [Liverpool](https://www.eoe.is/liverpool/) maður er alveg ótrúlegur. Fyrir tveim vikum finnur hann einhvern prófessor, sem vill íhuga það að Ísland segi upp EES samningnum og tekur sjálfur við hann viðtal, sem er sett á forsíðu Viðskiptablaðsins.

Síðan fær hann til sín í sjónvarpssal hinn Íslendinginn, sem heldur uppi sömu skoðun og vitnar þar í eigin viðtal í Viðskiptablaðinu (sem hann tekur aldrei fram að hann hafi tekið) og lýsir því síðan sigri hrósandi í lok þáttarins að nú sé komin af stað umræða í þjóðfélaginu um að segja upp EES samningnum. Já, og svo kemur hann með 5 mínútna innslag um að RÚV hafi ekki haft einhverja frétt í fréttayfirliti á meðan að skyldar fréttir komust í yfirlitið. Algjör snilld!

3 thoughts on “Ólafur Teitur og fréttayfirlit”

  1. hehe loksins thori eg ad skrifa herna inna 😉 .. en thu ert held eg buin ad smita mig lika af kvefi og ogedi med thvi ad lesa bloggid thitt 😉 En haltu afram, thad er ædi ad lesa thetta 🙂
    Kvedja …

  2. Í dag keypti ég mér The Very Best of Dusty Springfield fyrir heilar 1500 kr.

    Ég fyrirgef þér aldrei að hafa komið mér upp á lagið með hana.

    Svona tónlist á maður einungis að spila þegar maður setur upp gervineglurnar, gervibrjóstin og smegir sér í pallíettukjólinn.

    Fann mig knúinn til að lækka í disknum þegar ég stoppaði á rauðu ljósi á leið úr Skrífunni. Óttaðist að kæmist upp um mig.

  3. Sara, leitt að heyra með kvefið. En takk fyrir hrósið 🙂

    Og “SOAPM”, ekkert að þakka. Ef að emailin addressan, sem þú gefur upp er rétt, þá verð ég að viðurkenna að þessar gervinagla pallíettukjóls lýsingar eru frekar scary 🙂

    Dusty er æði. Við þurfum ekkert að skammast okkar fyrir hana :biggrin2:

Comments are closed.