Stefnumótasjónvarp

Þetta Chicago íþróttaþemakvöld byrjar ekki vel, því [Cubs töpuðu](http://chicago.cubs.mlb.com/NASApp/mlb/news/wrapup.jsp?ymd=20050506&content_id=1040374&vkey=wrapup2004&fext=.jsp&c_id=chc).
Oh, ég veit ekki hvernig ég nenni að svekkja mig á þessu liði.


Annars, SHIT!

Ég horfði í fyrsta skipti á heilan þátt af nýju Djúpu Lauginni. Það var erfiður klukkutími. Fyrir það fyrsta, þá gat ég aldrei horft í meira en mínútu án þess að skipta um stöð eða grípa um augun sökum þess hve ég vorkenndi fólkinu í þættinum.

Þetta nýja format á þættinum er alveg stórkostlegt, sérstaklega parturinn þar sem annað af tveimur deitum er sent heim á miðju stefnumótinu. Fyrir þá, sem hafa ekki séð þáttinn, þá fara alltaf 2 strákar og 1 stelpa, eða öfugt, saman á stefnumót (einn aðilinn er valinn af spyrjendanum, en hinn er valinn í símakosningu af áhorfendum). Í þessum þætti var það 1 kall og tvær konur, sem hittust heima hjá vini karlsins.

Þau hittast þarna fjögur í íbúð einhvers staðar í Reykjavík, borða franskar, salat og kjöt og drekka vín. Svo þegar þau eru búin með forréttinn, þá stendur kallinn upp og þarf að flytja ræðu, þar sem hann vísar annarri konunni heim. Úr því verða einhver pínlegustu móment í íslenskri sjónvarpssögu.

Áður fyrr var allavegana eitthvað fútt í stefnumótunum því myndatökumaður fór með fólkinu á fyllerí og einsog sönnum Íslendingum sæmir, þá gerði fólk alltaf eitthvað heimskulegt á þeim stefnumótum. Með þessu nýja formati, þá virðist myndatökumaðurinn aðeins vera með fólkinu í 2-3 tíma og því gerist ekki nokkur skapaður hlutur! Nákvæmlega ekki neitt!

Samkvæmt stelpunni, sem tók viðtal við parið þá var það mest spennandi, sem gerðist á stefnumótinu í þessum þætti, það að *frönsku kartöflurnar duttu í gólfið.* Já, og svo er konan alltaf uppí bústað. Ho ho ho ho! Kræst.

Þetta er ekki nógu gott. Mér fannst Djúpa Laugin einu sinni ágætis sjónvarpsefni, en menn þurfa að taka sér verulegt tak ef að það á að bjarga þessari seríu.

Hversu æðislegt var það líka að spyrjandinn og einn keppandinn í þættinum í kvöld þekktust? Þau voru bæði frá Sauðárkróki. Jei!

En allavegana, stelpan sem stjórnar þættinum er sæt. Plús fyrir það!


Annars, þá sá ég nýju syrpuna af Bachelor í gær. Sú syrpa lofar góðu. Aðallega vegna þess að ein aðalgellan virðist vera alger bitch, sem allar hinar stelpurnar hata. Það býður auðvitað uppá ýmis rifrildi, sem eru einmitt það skemmtilegasta við þessa þætti. Fyrstu þættirnir í þessum Bachelor/Bachelorette eru auðvitað bestu þættirnir, þar sem stelpurnar tapa sér yfir því hvað hinar eru leiðinlegar og grenja yfir gaurnum.

Í síðari þáttunum breytist þetta í viðbjóðslega velgju, sem enginn, nema einhver hjón í eins Don Cano göllum, getur horft á án þess að gubba.

One thought on “Stefnumótasjónvarp”

  1. Jájá stelpan í Djúpu lauginni er sæt, en það er víst ekki nóg þar sem hún er gjörsamlega vonlaus stjórnandi! Hugsanlega yrði þátturinn oggupínulítið skárri ef stjórnendurnir væru aðeins betur talandi og ekki svona voðalega stressaðir. Ég tek einmitt fyrir augun af því ég vorkenni stjórnendunum svo mikið, það er svona Office fílingur í að horfa á þetta, maður bara sekkur niður í sófann af skömm og það tístir í manni;) Annars er þættinum varla við bjargandi með þetta ömurlega deit fyrirkomulag, þetta fælir fólk einfaldlega frá því að taka þátt…eða það ætti að minnsta kosti að gera það, ætli þátttakendum hafi verið borgað eitthvað kannski? Nema auðvitað að Skjár einn náist bara alls ekki á Sauðárkróki og uppi í bústað;)

Comments are closed.