Sunnudagskvöld

Vá hvað 24 er góður þáttur. Ég held að það hafi aldrei verið sjónvarpsþáttur, sem heldur mér svona ótrúlega spenntum nær allan tímann. Í endan á þættinum, sem var sýndur í kvöld var ég staðinn upp, því ég gat ekki setið af spenningi. Ég var alveg heillaður af fyrstu seríunni af 24 en hélt að seinni serían hlyti að valda mér vonbrigðum. Það hefur hins vegar ekki gerst.

Sunnudagskvöld eru einu kvöldin, þar sem ég sit límdur við skjáinn í langan tíma. Boomtown er mjög góður þáttur og svo líka 60 Minutes. Síðan hef ég haft mjög gaman af “20. öldinni”. Mjög gaman að sjá öll þessi myndskeið. Svo fyllist ég alltaf gríðarlegu þjóðernistolti þegar afrek Íslendinga eru þulin upp, hvort sem það var verið að tala um sigrana í landhelgismálinu eða sýna þegar Ríkharður Daðason skoraði gegn Frökkum.

4 thoughts on “Sunnudagskvöld”

  1. Eru þetta sumsé nýjir þættir? Ég var einmitt að spá í hvað Norðurljósamenn væru að pæla. Fyrst sýndu þeir 24 í heilan sólarhring á Sýn (ótruflað) og svo væri verið að endursýna þá AFTUR og það á primetime á sunnudögum.

    Hvernig er hægt að gera “framhald” að þessum þáttum? Ég hélt að þetta hefði verið mini-sería, með upphafi og endi? :confused:

  2. Já, fyrsta serían endaði á svakalegan hátt. Hins vegar tókst snillingunum á Fox að búa til nýja seríu. Og það sem merkilegra var, þeim tókst að gera það á þann hátt að maður var alveg sáttur við allt. Tengingin við gömlu seríuna er mjög góð.

  3. Hmm, já, 24 er alveg þokkalegur. Hvað er serían langt komin heima? Jæja, best að vera ekki með neina spoilera – N34 🙂

Comments are closed.