Uppboð 2007: Vín

**Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. [Hérna er yfirlitssíðan](https://www.eoe.is/uppbod2007) fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo [kynningarfærslan fyrir uppboðið](http://eoe.is/gamalt/2007/12/12/19.57.46)**

* * *

Einsog í fyrra, þá voru þau hjá Ölgerðinni svo indæl að gefa mér tvær vínflöskur.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst á einarorn@gmail.com og ég set inn þá upphæð.

Grand Marnier Lounge Box

Sjá mynd af flöskunni hér. Ekki til í ÁTVR, en aðrar Grand Marnier eru á yfir 4 þúsund.

Masi Amarone

Sjá mynd af flöskunni hér. Kostar í ÁTVR um 3 þúsund.

Lágmarksboð er 1.000 krónur og uppboði lýkur á fimmtudag 20.des klukkan 23.59.

12 thoughts on “Uppboð 2007: Vín”

  1. nei ég hugsa að ég verði að draga boðið til baka en peningnum væri altént vel varið. nýtt boð 4000 kr þú ættir að getað toppað það Siggi.

  2. Ekki það að ég sé ekki hrifinn að því að þú sért að styrkja góð málefni, en er ekki áfengissala ólögleg, nema þú hafir sótt um sérstakt vínveitingaleyfi? 🙂

  3. Jú, það má eflaust finna einhver lög gegn því. En ef að lögreglan hefur ekki þarfari hluti að gera en að agnúast útí þetta, þá er mér öllum lokið. 🙂

Comments are closed.