Skráarsafn fyrir August, 2004

Aug 11 2004

O'Reilly vs. Paul Krugman

skrifaði í flokkinn Sjónvarp,Stjórnmál

Bill O’Reilly, stjórnandi The O’Reilly Factor (sem, eftir [aðdáun hans á Ann Coulter](http://www.bjorn.is/leit?SearchFor=coulter) að dæma, væri pottþétt uppáhaldsþáttur Björns Bjarna), mætti hagfræðisnillingnum Paul Krugman á CNBC um helgina.

Krugman, sem er núna pistlahöfundur á NY Times, hefur gagnrýnt Bush stjórnina harkalega en O’Reilly hefur varið Bush og kallar alla þá, sem ekki dýrka hann og dá, föðurlandssvikara.

Allavegana, O’Reilly hefur hrósað sjálfum sér afskaplega mikið undanfarna daga fyrir að hafa staðið sig svo vel í þessu viðtali. Jim Gilliam, höfundur [Outfoxed](http://www.amazon.com/exec/obidos/tg/detail/-/B0002HDXTQ/qid=1092264839/sr=8-1/ref=pd_ka_1/103-1224149-3119807?v=glance&s=dvd&n=507846) er ekki alveg sammála og tók saman smá myndbút úr þessu viðtali og bætti inn tengdum staðreyndum.

Myndbandið er skemmtilegt fyrir þá, sem hafa áhuga á bandarískri pólitík:

[**Krugman vs. O'Reilly hjá Tim Russert**](http://www.jimgilliam.com/video/krugman_vs_oreilly_200.mov) – 12 mb Quicktime skjal.

Þessi færsla er tileinkuð [Óla](http://www.obalogy.com/) snillingi, sem virðist alveg vera hættur að blogga

via [MeFi](http://www.metafilter.com/mefi/34909)

4 ummæli hingað til

Aug 10 2004

Áætlanagerð á svölunum

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ef ég myndi reyna alveg ofboðslega mikið, þá gæti ég alveg vanist þessu veðri, sem hefur verið síðustu tvo daga á Íslandi.

Ég gafst uppí vinnunni um tvö leytið, enda var hitinn alltof mikill.

Er núna kominn heim og sit útá svölum með kokteil og ljóshærða gellu mér við hlið fartölvu og stunda áætlanagerð af miklu kappi. Þarf að skila af mér gríðarlega hressandi áætlun fyrir morgundaginn. Jedúddamía hvað það er gaman að leika sér í Excel í nokkra klukkutíma. Skrítið að ég hafi aldrei viljað vinna í banka.

Comments Off

Aug 09 2004

Múrinn á Broadway!

skrifaði í flokkinn Tónlist

Nei, Roger! Nei nei nei nei!

Ekki gera okkur Pink Floyd aðdáendum [þetta](http://news.bbc.co.uk/1/hi/entertainment/arts/3539908.stm)!

2 ummæli hingað til

Aug 08 2004

Biðraða-kjaftæði

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ok, nú er nóg komið. Þessari geðveiki verður að linna!

Ég fór ásamt vini mínum og kærustu hans á [Vegamót](http://www.vegamot.is) í gær. Ég og vinur minn vorum bara rólegir, höfðum hangið heima hjá mér um kvöldið og vorum mættir á Vegamót um 1.30.

Þar var biðröð, einsog við var að búast enda er nánast alltaf biðröð fyrir utan Vegamót. Fyrir utan Vegamót, líkt og t.d. [Hverfisbarinn](http://www.hverfisbarinn.is/) eru tvær biðraðir. Önnur vanalega löng, hin stutt. Á Hverfis er þetta kallað “VIP” röð, og ég geri ráð fyrir að svo sé líka á Vegamótum. VIP á ensku stendur fyrir “Very Important Person”. Ég hef ýmislegt á móti þessum “VIP” biðröðum, en fyrst að sögunni.

Allavegana, við förum í biðröðina. Við vorum öll frekar róleg og smám saman færðumst við nær staðnum. Þegar við erum komin uppað hurðinni stoppar biðröðin hins vegar enda staðurinn fullur. Við bíðum í smá tíma. Í hina biðröðina (“VIP” röðina) kemur hins vegar hópur af stelpum. Sennilega ekki mikið eldri en 16 ára (á Vegamótum er 22 ára aldurstakmark). Þær voru 10 saman.

Þær byrja strax að væla í dyravörðunum. Vildu fá að komast inn á staðinn án þess að þurfa að bíða í biðröð. Þær halda áfram að röfla og reyna að daðra við dyravörðinn. Ekkert gengur, en allt í einu opnast hliðið á VIP röðinni og þeim er öllum hleypt inn.

Þannig að eftir 5 mínútna röfl var þeim hleypt inn, *aðeins af því að þær fóru í VIP röðina*. Þær þekktu ENGAN, þær voru ekki frægar, og voru ólíklegar til að eyða einni krónu inná þessum skemmtistað.

Nú skal ég játa það að ein af ástæðum þess að ég sæki Vegamót er sú að þar er alveg með ólíkindum mikið af sætum stelpum. Í hópnum voru vissulega sætar stelpur. En í biðröðinni fyrir aftan okkur var líka heill haugur af sætum stelpum. Þær stelpur ákváðu hins vegar að fara í rétta röð og taka lífininu rólega. Fyrir það var þeim verðlaunað með að þær fengu að hanga 20 mínútum lengur en stelpurnar, sem röfluðu í “VIP” röðinni.

**Er eitthvað vit í þessu?**

Við komumst á endanum inn, um 10 mínútum á eftir gelgjunum. Inná staðnum var mjög fínt. Ótrúlega sætar stelpur einsog vanalega og frábær tónlist. Sá stelpu, sem ég er pínu skotinn í (VÁ hvað hún var sæt!) en þorði ekki að segja neitt. Þetta græðir maður á því að fara nánast bláedrú á djammið. :-)
Lesa áfram »

23 ummæli hingað til

Aug 07 2004

Hamborgarasnilld!

skrifaði í flokkinn Myndablogg

hamborgari.jpg
Lesa áfram »

2 ummæli hingað til

Aug 06 2004

Á hvað ertað hlusta?

skrifaði í flokkinn Tónlist

Fyrir [nokkrum vikum](http://www.eoe.is/gamalt/2004/07/13/00.18.49/#2857) var mér bent á [Audioscrobbler](http://www.audioscrobbler.com) í kommenti við færslu á þessari síðu.

Þegar síðan opnaði aftur eftir breytingar dreif ég mig og skráði mig. Þetta virkar þannig að maður setur lítið plug-in fyrir iTunes eða annað tónlistarforrit á tölvuna sína. Svo þegar maður spilar tónlist í iTunes, þá uppfærist það sjálfkrafa í [prófíl](http://www.audioscrobbler.com/user/einarorn/) á Audioscrobbler. Þannig heldur síðan utanum hvaða tónlist maður hlustar á og með einföldum hætti er hægt að sjá hvaða fólk er að hlusta á sömu tónlist. Þannig er með einföldum hætti hægt að sjá hvaða nýju bönd þetta fólk er að hlusta á.

[Minn prófíll er hér](http://www.audioscrobbler.com/user/einarorn/).

Ég hef bara verið skráður í nokkra daga, þannig að það eru fá lög skráð, en smám saman verður þetta athyglisverðara.

Það er gríðarlega margt skemmtilegt í þessu. Til dæmis ef maður smellir á [Beck](http://www.audioscrobbler.com/music/Beck), þá sér maður hvaða lög eru vinsælust með Beck hjá notendum Audioscrobbler. Þar kemur í ljós að Loser (æji!) er vinsælast. Ég komst líka að því að ég hafði aldrei heyrt af laginu í öðru sæti, Everybody’s Gotta Learn Sometimes. Komst að því að það lag var í [Eternal Sunshine of the Spotless Mind](http://imdb.com/title/tt0338013/), sem ég hef ekki séð. Ég náði mér í lagið og það er gargandi snilld. Ég hefði sennilega ekki uppgötvað það á næstunni ef ekki væri fyrir [Audioscrobbler](http://www.audioscrobbler.com).

Það má segja að eini gallinn enn sem komið er við þessa síðu, sé sá að hún tekur ekki upplýsingar um lagaspilun úr iPod-inum mínum. En ég hvet alla til að skrá sig á [Audioscrobbler](http://www.audioscrobbler.com), þetta er alger snilld. Sniðug hugmynd og frábærlega einföld og skemmtileg hönnun á vefsíðu.


Enn meiri snilld er samt [Last.fm](http://www.last.fm/), sem tengist gögnunum í Audioscrobbler. [Last.fm](http://www.last.fm/) virkar þannig að þegar þú hefur hlustað á nóg af tónlist með Audioscrobbler í gangi (a.m.k. 300 lög), þá reynir Last.fm að meta tónlistarsmekk þinn eftir því hvað þú hlustaðir á.

Last.fm býr síðan til þína eigin útvarpsstöð, sem þú getur hlustað á á netinu. Þannig að ef þú hlustar mikið á Jay-Z og Eminem, þá býr forritið til útvarpsstöð með mikið af hip-hop efni og svo framvegis. Þetta er því FRÁBÆR leið til að heyra nýja tónlist.

Þetta er svo mikil snilld að ég á varla til orð!

Frekara lesefni: [Wired: Last.fm: Music to Listeners' Ears](http://www.wired.com/news/culture/0,1284,59522,00.html)

**Uppfært**: Ég var búinn að bæta þessu við í kommentunum, en ekki allir lesa þau. Allavegana, þá stofnaði ég [hóp fyrir Ísland](http://www.audioscrobbler.com/group/Iceland). Þannig að það væri gaman ef þeir, sem eru skráðir þarna myndu ganga í hópinn. Ég veit reyndar ekki af hverju það er mynd af mér á hóp-síðunni. Þetta er ekki eitthvað egó í mér, heldur fatta ég einfaldlega ekki hvernig á að breyta um mynd á hóp-síðum.

5 ummæli hingað til

Aug 04 2004

Fahrenheit umræða

skrifaði í flokkinn Kvikmyndir

Fahrenheit 9/11 verður frumsýnd um helgina á Íslandi og því er hafin umræða um myndina hér á landi.

Ég sá myndina fyrir nokkrum vikum og skrifaði um hana hér: [Fahrenheit 9/11](http://www.eoe.is/gamalt/2004/07/03/17.01.27/)

Í Kastljósi í kvöld var riddari sannleikans frá því í fjölmiðlamálinu, Ólafur Teitur að þræta við [Sverri Jakobsson](http://kaninka.net/sverrirj/010514.html) og kvikmyndagagnrýnanda (Ólaf Torfason) um myndina.

Ólafur Teitur er löngu hættur að reyna að fela stjórnmálaskoðanir sínar, þrátt fyrir að hann sé blaðamaður. Hann, líkt og ansi margir hægrimenn í Bandaríkjunum kýs að einbeita sér að meintum staðreyndavillum í myndinni, svosem að Michael Moore hafi ekki getið þess rétt hvað bókin, sem Bush las í 7 mínútur í skólastofu á Florida á meðan ráðist var á Bandaríkin, hét. (Ok, Ólafur tiltók líka aðrar merkilegri meintar staðreyndavillur. Flestar þeirra eru ræddar [hér](http://www.michaelmoore.com/warroom/f911notes/)).

Einsog ég [skrifaði um áður](http://www.eoe.is/gamalt/2004/07/03/17.01.27/), þá eru samsæriskenningarnar án efa veikasti hluti myndarinnar. Ekki vegna þess að þær séu endilega ósannar, heldur draga þær úr áhrifum bestu hluta myndarinnar, sem sýna áhrif efnahagsástandsins og stríðsins í Íraks á venjulegt fólk. Vegna galla á samsæriskenningunum geta menn gert lítið úr bestu atriðunum með því að benda á óskyldar meintar staðreyndavillur í öðrum atriðum og þannig dregið á ósanngjarnan hátt úr trúverðugleika myndarinnar.

Besti hluti Fahrenheit 9/11 er nefnilega að hún gefur atburðum síðustu ára andlit. Í stað þess að heyra um tölfræði, þá sjáum við fólkið, sem stríðið og stefna Bush snertir. Auk þess gagnrýnir myndin á skemmtilegan hátt alla geðveikina í kringum Bush stjórnina, allt frá appelsínugulum hryðjuverkavörnum til skerðingar á borgaralegum réttindum Bandaríkjamanna.

Hversu margar meintar staðreyndavillur, sem Ólafur Teitur og félagar finna, þá nær það ekki að grafa undan þeim meginboðskap myndarinnar að Bush stjórnin hefur grafið undan réttindum borgara sinna, öryggi þeirra, sem og orðspori Bandaríkjanna á alþjóða vettvangi.

16 ummæli hingað til

Aug 04 2004

Góð ráð frá Einari Erni

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Ekki horfa á Extreme Makeover meðan þú borðar kvöldmat.

Þetta lærði ég áðan. Fitusog er ekki beint sjónvarspefni, sem eykur matarlystina mína.

2 ummæli hingað til

Aug 03 2004

Verið hrædd! (framhald)

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ég var að reyna að rifja upp eitthvað kvót úr 1984, því mér finnst þetta hryðjuverka-viðvaranakerfi orðið svo fáránlega líkt einhverju atriði úr 1984.

Jæja, einn [notandi á MeFi fann rétta kvótið](http://www.metafilter.com/mefi/34734#712366):

>It does not matter whether the war is actually happening, and, since no decisive victory is possible, it does not matter whether the war is going well or badly. All that is needed is that a state of war should exist.

[Kvót úr 9. kafla af 1984](http://www.readprint.com/chapter-7616/George-Orwell)

3 ummæli hingað til

Aug 03 2004

Verið hrædd! Verulega hrædd!

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Þetta er alveg hreint ótrúlega magnað: [US terror plot intelligence 'old'](http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/3530358.stm).

Fyrir þá, sem nenna ekki að lesa þetta, þá voru allar þær viðvaranir, sem gefnar voru út í Bandaríkjunum um helgina (um að hryðjuverkamenn ætluðu að ráðast á fjármálafyrirtæki) byggðar á upplýsingum, sem voru **fjögurra ára gamlar**!

Þetta passar svo vel eitt af meginþemum Fahrenheit 9/11 að það er ekki fyndið. Það er, að það hentar stjórnvöldum afar vel að halda almenningi alltaf hræddum.

Það er líka ekki fræðilegur möguleiki að tímasetningin á þessum viðvörunum sé tilviljun, svona rétt eftir landsþing Demókrata. Það hafði jú [lekið frá Hvíta Húsinu](http://www.tnr.com/doc.mhtml?i=20040719&s=aaj071904) að æskilegt væri t.a.m. að ná Osama Bin Laden í Júlí, helst þegar á ráðstefnu Demókrata stæði.

Ég veit að ég hef varið Bandaríkin og stefnu þess lands ansi lengi. En það er bara ekki hægt að verja þessa brjálæðinga. Það er með ólíkindum að það skuli enn vera 50% af bandarísku þjóðinni, sem er ekki enn búin að fatta að stjórnvöld eru að leika sér að þeim.

3 ummæli hingað til

« Nýrri færslur - Eldri færslur »